Samstarf heimila og skóla
Skólamálaráð hefur gefið út nýtt Umræðuhefti um menntamál þar sem fjallað er um samstarf heimilis og skóla með tilliti til hvítbókar.
Samstarf heimila og skóla er til umfjöllunar í nýjasta Umræðuhefti um menntamál sem skólamálaráð KÍ hefur tekið saman. Tilefni samantektarinnar er stefna í menntamálum hér á landi eins og hún birtist í hvítbók menntamálaráðherra um umbætur í menntun, tillögum um aðgerðir og ákvörðunum um framkvæmd.
Í þessu hefti er sjónum beint að því sem er að finna í hvítbók um samstarf heimila og skóla; hverjar eru tillögur verkefnahópa menntamálaráðuneytis um útfærslu á stefnu hvítbókar um læsi, námstíma og starfsmenntun. Dregin er upp staðan á innleiðingu menntastefnum í lögum og námskrám og því næst fjallað um stefnur og áherslur hvítbókar. Í þriðja kafla er að finna tillögur verkefnahópanna um samstarf heimila og skóla og í tengslum við þær setur skólamálaráð fram spurningar til íhugunar og umræðu.
Umræðuhefti skólamálaráðs um menntamál:
- Umræðuhefti um menntamál (janúar 2016)
- Umræðuhefti um menntamál – læsi (febrúar 2016)
- Umræðuhefti um menntamál – starfsmenntun (mars 2016)
- Umræðuhefti um menntamál – námstími (apríl 2016)
- Umræðuhefti um menntamál – kennsluhættir og námsmat (maí 2016)
- Umræðuhefti um menntamál – samstarf heimila og skóla (september 2016)
Skólamálaráð hvetur félagsfólk til að kynna sér umræðuheftið og stuðla að umfjöllun um það. Skólamálaráð fagnar öllum ábendingum og þönkum um efnið. Pistlar sem berast verða birtir í miðlum KÍ.