Samstarf eflt um nýja Menntamiðju

Fréttir|6. mars 2021

Markmið Menntamiðju er að vera gátt að starfsþróun kennara, stjórnenda og annars fagfólks í menntakerfinu.

Menntamiðja hefur verið starfrækt frá árinu 2012 og hefur nú verið skrifað undir samkomulag um áframhaldandi rekstur hennar til ársins 2024. Þeir sem standa að Menntamiðju eru, auk Kennarasambands Íslands, Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Mennta- og menningarmálaráðuneyti, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn í Reykjavík, Listaháskóli Íslands, Menntamálastofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga.

Í frétt á vef Háskóla Íslands segir að markmið Menntamiðju sé að vera gátt að starfsþróun kennara, stjórnenda og annars fagfólks í menntakerfinu. Á vefsvæði Menntamiðju verður miðlað óformlegri starfsþróun sem sprettur upp úr grasrót faghópa í menntakerfinu, sem og formlegri starfsþróun af hálfu eigenda Menntamiðju. Á Menntamiðju verður hægt að nálgast upplýsingar um styrki og sjóði sem standa til boða. Af Menntamiðju verður einnig miðlað viðburðum og rannsóknum sem eiga erindi við menntakerfið og hagsmunaaðila þess. Menntamiðja verður vettvangur fyrir samstarf aðila menntakerfisins um þróunarstarf og nýsköpun. Ritstjórn Menntamiðju tekur afstöðu til efnis sem miðlað er á Menntamiðju og mótar verklag þar um.

Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands, skrifaði undir samkomulagið fyrir hönd KÍ og sagði við það tilefni: „Gagnlegasta viðbragð fagstéttar við örum samfélagsbreytingum er öflug starfsþróun. Með því móti er hægt að takast á við erfiðleika og áskoranir og fjölga um leið þeim tækifærum sem breytingunum geta fylgt. Menntamál eru, og verða áfram, á hverfanda hveli.  Skólakerfið þarf því aukna áherslu á starfsþróun og aukinn stuðning við forystuhlutverk kennara í því að móta faglegt skólastarf. Menntamiðja, með víðtæku og virku samstarfi, er stórt skref í rétta átt sem ég fagna innilega.“