Samstaðan skilar alltaf betri árangri

Fréttir|10. nóvember 2025
Pistill

„Kennarar eiga að leiða skólastarf; fagmennska og fagþekking þeirra á að ráða ferðinni, ekki skoðanir, pólitík eða sýn ákveðinna hópa í samfélaginu sem háðar eru tíð og tíma.“

Jónína Hauksdóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands, komst svo að orði við slit Skólamálaþings KÍ sem haldið var 6. nóvember í höfuðstöðvum sambandsins í Borgartúni 30. Tilefnið var aldarfjórðungsafmæli sambandsins. Fyrirlesarar voru ekki af verri endanum.

Auk Jónínu stigu Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, Ari Eldjárn uppistandari, Guðmundur I. Kristinsson mennta- og barnamálaráðherrra, Elna Katrín Jónsdóttir, fyrrum varaformaður KÍ og Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, á stokk. Þingið var einstaklega vel sótt, bæði á stað og í streymi. 

Ræða varaformanns, sem vakti athygli, er birt hér í heild fyrir neðan.

 

Kæru félagar!

Það eru 25 ár síðan sú skynsamlega ákvörðun var tekin að sameina kennara í eitt samband og Kennarasambandið hefur vaxið og dafnað vel frá upphafsdögunum.

Útgangspunkturinn í upphafi var samstaða aðildarfélaganna í skólamálum – sjálfstæði í kjaramálum. Sú afstaða hélst að mestu, eða allt þar til Kennarasambandið gekk sameinað að kjaraborðinu í fyrsta sinn í fyrra og sýndi að saman erum við sterkari – að samstaðan skilar betri árangri á öllum sviðum. 

Skólamál og kjaramál eru okkar stærstu mál og strengurinn milli þeirra þarf að vera sterkur. Fyrir mig eru það forréttindi að fá að vinna að skólamálunum með öllu því öfluga félagsfólki sem myndar skólamálanefndir aðildarfélaganna. 

Við búum nefnilega svo vel í Kennarasambandi Íslands að eiga vel menntaða og öfluga kennarastétt. Stétt sem búa þarf vel um til þess að blómlegt skólastarf þrífist, eins og segir í Skólastefnu KÍ. Tryggja vellíðan kennara í starfi, svo sem með því að huga að starfsumhverfi kennara, fjölga tækifærum til starfsþróunar og gæta að því um leið að menntun, reynsla og starfsþróun kennara, á öllum skólastigum og í öllum skólagerðum, sé metin til launa og framgangs í starfi. Í þessu er eitt af meginhlutverkum Kennarasambandsins fólgið.

Að standa vörð um sjálfstæði kennara og faglegt frelsi þeirra er annar angi af þessu verkefni. Mikilvægur angi – ekki síst nú á krefjandi tímum þar sem við vitum ekki alveg hvað framtíðin kann að bera í skauti sér, í heimi þar sem margar stórar áskoranir blasa við: loftslagsbreytingar, stríðsátök, samfélagsmiðlar og uppgangur harðrar hægri stefnu víða um lönd, svo nokkur dæmi sé tekin.

Í heimi þar sem lýðræði er víða í hættu krefst skólastarf ekki aðeins trausts og samvinnu, heldur líka hugrekkis.

Því, líkt og Kennarasambandið hefur alla tíð lagt höfuðáherslu á, þá eiga kennarar að leiða skólastarf; fagmennska og fagþekking þeirra á að ráða ferðinni, ekki skoðanir, pólitík eða sýn ákveðinna hópa í samfélaginu sem háðar eru tíð og tíma. 

Við verðum alltaf að standa fast á þessu.

Skólinn er og á vera jöfnunartæki samfélagsins. Stöðugleiki í skólastarfi er mikilvægur og skólinn þarf að standa af sér storma á borð við popúlisma, ófrið, óljósa fortíðarþrá og ágreining um einstök atriði í kennslu og námi. Við þurfum að tryggja öllum börnum jöfn tækifæri, halda fast í gildin okkar en á sama tíma vera dugleg við að aðlaga okkur breyttum veruleika, þróast og taka á móti framtíðinni.

Ekki einfalt eða létt verkefni en við vitum að skólinn – fólkið sem byggir skólann – hefur burði til að valda verkefninu. Við sáum það í heimsfaraldri – hvernig okkar eigin “framlínustétt” stóð sig. Hvernig kennarar, stjórnendur, ráðgjafar og starfsfólk skóla unnu saman, sýndu ótrúlegt þolgæði og hugmyndaríki við að halda skólastarfi gangandi. Héldu uppi menntun og rútínu fyrir börn og ungmenni. 

En til að valda svo stóru ábyrgðarmiklu verkefni þarf skólasamfélagið bjargir. Kennarar þurfa bjargir í formi tíma til samstarfs og starfsþróunar, þeir þurfa námsgögn, stuðning yfirvalda og samfélagsins alls. Gera þarf kennarastarfið aðlaðandi og gera kennurum kleift að starfa við skóla sem þeir eru stoltir af. Þar sem kennarar sinna kennslu, þar sem fagmennska er í fyrirrúmi, þar sem nám hverfist um traust og samvinnu og þar sem skilgreiningin á gæðamenntun er skýr.

Gæðamenntun snýst ekki eingöngu um námsárangur, einkunnir og próf. Í síbreytilegum heimi er undirstaða náms farsæld nemenda, sálfélagslegt öryggi þeirra, þátttaka, traust, sköpun, samskipti, samkennd, gagnrýnin hugsun og lýðræði. 

Menntun er vagga lýðræðisins og þar höfum við hlutverki að gegna. Það er ekki nóg að kenna lýðræði heldur þarf að iðka það í verki – börnin læra það sem fyrir þeim er haft. 

Börnin okkar eiga skilið fagmennsku og stöðugleika - saman mótum við framtíðina.