Sam­staða skapar sam­fé­lag

Fréttir|5. ágúst 2025

Hinsegin dagar hófust í dag og standa yfir fram á sunnudag. Hápunkturinn er gleðigangan í Reykjavík á laugardaginn.

Hinsegin dagar eru haldnir hátíðlegir í 26. sinn í ár, dagana 5.-10. ágúst. „Sam­staða skapar sam­fé­lag“ er þemað í ár. Dagskráin er fjölbreytt að vanda og eitthvað fyrir alla í boði.

Gleðigangan, hápunktur hátíðarinnar, fer fram laugardaginn 9. ágúst. Lagt verður af stað frá Hallgrímskirkju klukkan 14:00 og gengið í Hljómskálagarðinn þar sem útitónleikar taka við. Gangan er í senn kröfuganga hinsegin fólks, sem kallar eftir jafnrétti, vitundarvakningu og útrýmingu mismununar, sem og vettvangur til að fagna því sem hefur unnist í baráttunni, líkt og segir á vef Hinsegin daga.

 

 

Kennarasamband Íslands styður heilshugar við réttindabaráttu hinsegin fólks og hvetur til þátttöku í gleðigöngum laugardagsins. Af tilefninu sendi sambandið frá sér stuðningsyfirlýsingar í samstarfi við ASÍ, BHM og BSRB þar sem ítrekað er að hinsegin réttindi séu mannréttindi, enda mikilvægt að sofna ekki á verðinum, líkt og David Edwards, framkvæmdastjóri Education International (EI) benti á nýverið.

„Menntakerfi um allan heim eru undir vaxandi þrýstingi frá öfgahægri hugmyndafræði sem leitast við að grafa undan réttindum hinsegin fólks, bæla niður inngildandi námskrár og rannsóknir, og veikja lýðræðisleg gildi,“ segir Edwards.

Kennarar standa í framlínunni þegar kemur að því að verja réttindi og tilvist hinsegin fólks, verja nemendur og samstarfsfólk fyrir sífellt fjandsamlegra andrúmslofti í samfélögum þjóða, segir hann.

Það þýði að kennarasamtök allra landa verða að vera sýnileg í baráttunni fyrir réttindum og tilvist hinsegin fólks og taka á bakslaginu sem víða hefur orðið vart er kemur að réttindum þeirra sem tilheyra hinsegin samfélögum.


Sjáumst stolt í göngunni á laugardaginn!