Samstaða og samvinna

Fjarnám á netinu eða nám sem nemendur og fjölskyldur þeirra stýra sjálf er ekki lausn fyrir alla. Hjá mörgum er fasti punkturinn í tilverunni er að sækja sinn skóla og fá þar bæði námslegan og félagslegan stuðningi og jafnvel daglega heita máltíð.
Útbreiðsla COVID-19 faraldursins er stærsta lýðheilsuáskorun sem Ísland og Evrópa hafa staðið frammi fyrir mjög lengi. Að því tilefni langar mig að senda félagsfólki Kennarasambands Íslands litla kveðju.
Eins og er vinn ég að heiman. Starfsfólk Kennarasambandsins hefur skipt sér upp í tvennt og helmingur þess vinnur í Borgartúninu í einu. Þetta eru viðbrögð í átt við þau sem almannavarnir hafa ráðlagt til að hefta og fresta mögulegu smiti eins og hægt er. Þá hefur stærri viðburðum á vegum KÍ verið frestað og samráðsfundir innan og utan samtakanna fluttir í hinn rafræna heim. Starfsemi KÍ er þó í fullum gangi og við munum leggja okkur fram að styðja félagsfólk okkar á hvaða máta sem hægt er.
Meðan ástandið varir mun KÍ leggja sig fram um að standa með sínu fólki. Ástandið og verkefnin eru mismunandi milli félaga í hinum ýmsu aðildarfélögum. Kennarar, náms- og starfsráðgjafar og stjórnendur hafa mjög mikilvægu hlutverki að gegna og það er áríðandi að við skólafólkið gerum okkar besta til að takast á við þessa miklu samfélagslegu áskorun saman. Meðal meginhlutverka KÍ er að auka samstarf kennara og gæta hagsmuna þeirra og réttinda. Á þessi hlutverk reynir svo sannarlega núna. Hvers konar samstaða og samvinna eflir kennarastéttina og því er gott tækifæri nú til að vekja athygli samfélagsins á framúrskarandi störfum kennara.
Væntanlega munum við þurfa að taka á öllu okkar vikurnar og mánuðina sem fram undan eru. Það er ómögulegt að spá fyrir um hvaða áhrif COVID-19 faraldurinn mun hafa á samfélagið og hagkerfið. En hins vegar er öldungis ljóst að menntakerfið þarf að verja og menntayfirvöld verða að gæta þess að niðurskurður og vanfjármögnun eins og varð raunin í kjölfar hrunsins endurtaki sig ekki.
Samfélagið verður aldrei sterkara en burðarásar þess og því þarf sérstaklega að standa vörð um samfélagslega innviði í ástandi sem þessu. Niðurskurður í opinberri þjónustu má aldrei verða lausnin. Skyndilega finnur allt samfélagið fyrir því að skólakerfið er ein af lykilstoðum samfélagsins og hversu mikil áhrif það hefur ef einn kennari dettur úr skaftinu.
Menntastofnanir af öllum gerðum og starfsfólk þeirra lendir nú í hringiðu þessa faraldurs sem breiðist hratt út og nauðsynlegt er að bregðast við. Skólafólk reynir til þrautar að sinna börnum og ungmennum og um leið að gera umhverfi þeirra öruggt svo unnt sé að fylgja leiðbeiningum um sóttvarnir. Þetta ástand getur haft mikil áhrif á börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra. Fjarnám á netinu eða nám sem nemendur og fjölskyldur þeirra stýra sjálf er ekki lausn fyrir alla. Hjá mörgum er fasti punkturinn í tilverunni er að sækja sinn skóla og fá þar bæði námslegan og félagslegan stuðningi og jafnvel daglega heita máltíð.
Tímarnir eru heldur ekki auðveldir fyrir kennara, náms- og starfsráðgjafa eða stjórnendur. Starfsfólk þarf að sýna mikla aðlögunarhæfni og útsjónarsemi við að finna nýjar leiðir til að nám gangi fyrir sig með sem snurðulausustum hætti og vera fljótt að finna nýjar leiðir til að hafa samskipti við nemendur. Og ekki er laust við að ég hafi fyllst stolti síðustu daga þegar ég hef séð félaga okkar í öllum aðildarfélögum sýna hugkvæmi, útsjónarsemi við að halda úti skólastarfi og gera allt sem þeir geta til styðja nemendur sína við verri starfsskilyrði en áður.
Meðan samkomubann varir mun KÍ gera allt sem í valdi sambandsins er til að vinna vel fyrir félaga sína og leggja sig fram við að halda félögum sínum upplýstum, veita hagnýt ráð og gæta þess að stjórnvöld sé þess meðvituð að kennarar, stjórnendur og annað fagfólk sem í skólunum vinnur er í lykilhlutverkum í samfélaginu.
Ég óska öllum félögum í KÍ góðs gengis við krefjandi störf á næstu vikum og þakka þeim fyrir ótrúlega fagleg viðbrögð síðustu daga.