Samstaða með IMAK og grænlensku þjóðinni

Mikið starf er nú unnið á vettvangi EI með stöðu frumbyggjaþjóða og baráttu þeirra þegar kemur að því að varðveita menningu þeirra og tungumál. Formaður KÍ og aðalritari Education International heimsóttu grænlensku kennarasamtökin nýverið. Frekara samstarf er í kortunum.
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ fylgdi David Edwards, aðalritara Alþjóðasamtaka kennara (Education International – EI) í heimsókn til Grænlenska kennarasambandsins í liðinni viku.
Tilefni heimsóknarinnar má rekja til fundar UTNORD sem fór fram hér á landi í lok ágúst. UTNORD er samvinnubandalag kennarasambanda á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum. Edwards aðalritari fundaði þá með formönnum kennarasambandanna og fram kom vilji EI um að styðja við UTNORD kennarasamböndin og kynna sér stöðu þeirra bæði á stéttarfélags- og skólamálagrunni.
Mikið starf er nú unnið á vettvangi EI með stöðu frumbyggjaþjóða (indiginous nations) og þeirra baráttu þegar kemur að því að varðveita menningu þeirra og tungumál m.a. með öflugu skólastarfi byggðu á þeirra gildum. Að hluta til var því heimsókninni ætlað að sýna samstöðu með þeim málstað, ekki síst í ljósi umræðu um Grænland og ásókn Bandaríkjanna að því landi.
Magnús og David Edwards fengu frábærar móttökur á Grænlandi og góða kynningu á skólastarfi þar, áskorunum sem blasa við, meðal annars er varðar þjóðtunguna grænlensku.
„Það voru forréttindi að fá að heimsækja Grænland og hitta frábæra samstarfsfélaga okkar hjá IMAK. Okkur var tekið opnum örmum og við fylltumst aðdáun á því starfi sem unnið er með börnum og fyrir börn í landinu.,“ segir Magnús.
Hann segir IMAK öflugt stéttarfélag þótt ekki sé það fjölmennt. „Kennarar bera þunga ábyrgð hvar sem þeir eru staddir en á Grænlandi fær þessi ábyrgð nýja vídd. Kennarar miðla ekki bara þekkingu, þeir eru verndarar örtungumáls, menningar og sjálfsmyndar. Þeim tekst að kenna börnum að takast á við áskoranir nútímans um leið og þeir kenna þeim að þekkja grænlenskar hefðir, trúa á eigin styrk og framtíð Grænlands,“ segir Magnús.
Hugrekki örlæti og staðfesta
Á vefsíðu EI má lesa samantekt á orðum sem Magnús lét falla þegar hann ávarpaði hina góðu gestgjafa við lok heimsóknar.
„Grænlendingar eru viljasterkir, metnaðarfullir og tengdir sögu sinni og framtíð traustum böndum. Sá andi skín í gegn í starfsemi IMAK og reyndar hjá hverjum einasta kennara sem við hittum. Þið eruð ekki aðeins að móta starf í skólastofum – þið eruð að móta land, þjóð og framtíð þar sem menntun er kjarni lýðræðis, jafnréttis og tækifæra.
IMAK er stéttarfélag sem hefur fagmennsku og framtíðarsýn að leiðarljósi og veitir þannig kennurum styrk til að krefjast virðingar fyrir stéttinni, sanngjarnra kjara og úrræða sem geta tryggt að hvert einasta barn á Grænlandi fá góða menntun. Þetta eru ekki litlar kröfur enda eru þær undirstaða samfélagsins. Þjóð sem fjárfestir í kennurum sínum fjárfestir í framtíð sinni,“ sagði Magnús meðal annars.
Fundum IMAK og EI lauk með sameiginlegum vilja um frekara samstarf. IMAK hyggst á næstu vikum ganga inn í starf EI og framkvæmdastjórinn, David Edwards, lýsti áhuga á að blásið yrði til ráðstefnu í Nuuk næsta sumar þar sem áherslur UTNORD þjóðanna í skólamálum verði áréttaðar og þar yrði enn frekari stuðningur við starf stéttarfélaga kennara á Íslandi, í Færeyjum og Grænlandi frá EI staðfestur.

Elna Thomsen Heilmann, formaður IMAK, David Edwards, frá EI, og Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ. Myndin er frá EI.
Stuðningur barst víðar að
Nokkur aðildarfélög EI sendu stuðningsyfirlýsingar þegar þau fréttu af heimsókninni. Þau eru og verða birt á vefsíðu EI. Laures Park, formaður ráðgjafanefndar EI um málefni frumbyggja, sendi eftirfarandi skilaboð til grænlenskra kennara:
Haldið fast í land ykkar, tungumál ykkar og menningu.
Innrásaraðilar hafa árum saman reynt að svipta ykkur dýrmætu lifibrauð en þið hafið alltaf staðið föstum fótum og barist á móti, rétt eins og forfeður ykkar gerðu á undan.
Óvinurinn getur verið nærri, eins og stjórnvöld okkar eru, eða ógnað úr fjarska. Þið megið vita að frumbyggjar um veröld alla standa með ykkur í friði og baráttu.
Megi guðir ykkar vaka yfir ykkur og styðja á þessum tímum.
Meira er fjallað um stuðning alþjóðasamfélags kennara í garð Grænlendinga á vefsíðu Education International.

David Edwards og Magnús Þór með forystusveit IMAK. Myndin er frá EI.