Samstaða kennara yfir landamæri afar mikilvæg

„Með virkri þátttöku í UTNORD vill sambandið stuðla að því að rödd kennara á Vestur-Norðurlöndum verði sterk, sýnileg og áhrifarík í umræðu um framtíð menntunar," sagði Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, að loknum alþjóðlegum fundi kennarasambanda í Nuuk á Grænlandi. Þar kom saman forystufólk kennara frá Norðurlöndunum, Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó auk fulltrúa stóru sambandanna Education International og ETUCE.
Fulltrúar Kennarasambands Íslands tóku í byrjun júní þátt í alþjóðlegum fundi sem haldinn var í Nuuk á Grænlandi að frumkvæði IMAK, kennarasamtaka Grænlands, í samstarfi við Education International (EI) og UTNORD (samtök kennarasamtaka á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum). Fundurinn leiddi saman fulltrúa kennarasamtaka sem eiga það sameiginlegt að vilja efla menntun, styrkja stöðu kennara og auka alþjóðlegt samstarf á tímum örra samfélagsbreytinga.
Á fundinum var fjallað um stöðu kennarastarfsins, mikilvægi opinbers menntakerfis, rétt barna og ungmenna til vandaðrar menntunar og hvernig tryggja megi að kennarar hafi raunverulega aðkomu að stefnumótun í menntamálum. Þá var sérstök áhersla lögð á mikilvægi þess að vernda tungumál, menningu og sérstöðu smærri samfélaga, enda eru þau órjúfanlegur hluti af öflugu og farsælu skólastarfi.
Grænland er ekki til sölu!
„Einn eftirminnilegasti þáttur fundarins var samstöðuganga undir yfirskriftinni Greenland is not for sale. Fulltrúar kennarasamtakanna gengu fylktu liði að grænlenska þinginu til að lýsa yfir stuðningi við grænlensku þjóðina, sjálfsákvörðunarrétt hennar og rétt hennar til að móta eigin framtíð. Þar var lögð áhersla á að menntun, tungumál og menningararfur væru grundvallarþættir í sjálfstæði og sjálfsmynd þjóða," segir Magnús.
Við grænlenska þinghúsið tóku þingmenn á móti hópnum, undir forystu Kim Kielsen, formanns grænlensku landsstjórnarinnar. Hann og aðrir þingmenn þökkuðu stuðninginn og áttu opið samtal við fulltrúa kennarasamtakanna um stöðu Grænlands, framtíðarsýn þjóðarinnar og mikilvægi alþjóðlegrar samstöðu.
Skólasamfélögin eiga margt sameiginlegt
Kennarasamband Íslands hefur um árabil átt í nánu samstarfi við kennarasamtök í Grænlandi og Færeyjum innan vettvangsins UTNORD. Samstarfið byggir á þeirri sannfæringu að þjóðir Vestur-Norðurlanda standi frammi fyrir mörgum sameiginlegum verkefnum í menntamálum. Þar má nefna mönnun skóla, eflingu kennarastarfsins, faglega þróun, aðgengi að menntun óháð búsetu og hvernig best verði mætt þörfum barna og ungmenna í ört breytilegu samfélagi.
„Þrátt fyrir ólíkar aðstæður eiga skólasamfélög Íslands, Grænlands og Færeyja margt sameiginlegt. Smæð samfélaganna skapar bæði áskoranir og tækifæri og gerir það að verkum að miðlun reynslu og sameiginleg þróunarvinna geta skilað miklum ávinningi. Kennarasamband Íslands leggur ríka áherslu á að efla þetta samstarf enda hefur það sýnt sig að lausnir sem þróaðar eru í einu landi geta oft nýst vel í hinum tveimur," segir Magnús.
„Þrátt fyrir ólíkar aðstæður eiga skólasamfélög Íslands, Grænlands og Færeyja margt sameiginlegt.“
Á fundinum í Nuuk kom jafnframt skýrt fram að sterk kennarasamtök og öflug alþjóðleg samvinna eru mikilvæg forsenda þess að byggja upp menntakerfi sem standast kröfur framtíðarinnar. Samstaða kennara þvert á landamæri styrkir ekki aðeins fagið heldur eykur einnig áhrif kennara á mótun samfélagsins og framtíð menntunar.
Rödd kennara á Vestur-Norðurlöndum verði sterk
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, var mjög ánægður með fundinn. Hann sagði KÍ líta á samstarfið við IMAK, kennarasamtök í Færeyjum og Education International sem mikilvægan þátt í alþjóðastarfi sambandsins.
„Með virkri þátttöku í UTNORD vill sambandið stuðla að því að rödd kennara á Vestur-Norðurlöndum verði sterk, sýnileg og áhrifarík í umræðu um framtíð menntunar. UTNORD hefur einnig sannarlega styrkt stöðu landanna þriggja á alþjóðavettvangi eins og við fundum greinilega á fundinum. Þar var mætt allt helsta áhrifafólk kennarasamtaka á Norðurlöndunum, í Evrópu og heiminum til að taka þátt í því verkefni að lyfta áherslum IMAK og UTNORD enn hærra. Fyrir okkur er mjög mikilvægt að finna það hvað raddir Íslands, Færeyja og Grænlands skipta máli á alþjóðavettvangi og samskiptin við þau sýna fram á þá virðingu sem borin er þar fyrir starfi okkar á heimavelli," sagði Magnús Þór.
„Fyrir okkur er mjög mikilvægt að finna það hvað raddir Íslands, Færeyja og Grænlands skipta máli á alþjóðavettvangi.“
Þá sagði Magnús hlýjar móttökur Grænlendinga undirstrika hið nána samband sem hefur styrkst milli kennarasamtaka landanna þriggja frá því UTNORD-samstarfið hófst og gefur miklar væntingar um enn öflugra samstarf til framtíðar.“
Education International gerði viðburðinum góð skil á vefsíðu sinni en samtökin hafa 375 kennarafélög innan sinna vébanda og 33 milljónir kennara. Formaður KÍ var í hópi þeirra sem ávörpuðu alþjóðakennarasamfélagið á vefsíðunni.
Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, sagði boðskap fundarins mikilvægan. Grænland stendur ekki eitt, sagði Jónína og bætti við að ánægjulegt hefði verið að sjá landsstjórn Grænlands hlusta á samstöðuræður leiðtoga kennarasambandanna.
Hvað næst?
Magnús segir að næsta skref í þessari vegferð verði stigið í lok ágúst þegar fulltrúar UTNORD mæta til fundar með fulltrúum Vestnorræna ráðsins í Reykjavík.
„Markmið fundarins er að efla enn frekar samstarf Íslands, Grænlands og Færeyja á sviði menntamála og skapa sterkari vettvang fyrir sameiginleg verkefni sem styðja við þróun skólastarfs, kennaramenntunar og faglegra samskipta á Vestur-Norðurlöndum. Með auknu samstarfi má byggja enn sterkari grunn undir menntun og velferð komandi kynslóða í löndunum þremur," sagði Magnús Þór Jónsson.