Samstaða einkenndi aðalfund Félags framhaldsskólakennara

Fréttir|30. apríl 2018

Í stefnu félagsins kemur fram skýlaus afstaða með brotaþolum kynferðislegs áreitis og ofbeldis og þeim tryggður stuðningur á skrifstofu félagsins.

Aðalfundur Félags framhaldsskólakennara var haldinn dagana 26. og 27. apríl. Í stefnu félagsins kemur fram skýlaus afstaða með brotaþolum kynferðislegs áreitis og ofbeldis og þeim tryggður stuðningur á skrifstofu félagsins.

Formaður félagsins, Guðríður Arnardóttir, endurnýjaði umboð sitt og ný stjórn tók við félaginu til næstu fjögurra ára. Nýgerður kjarasamningur sem undirritaður var 21. apríl sl. var kynntur á fundinum og voru umræður um hann uppbyggilegar. Atkvæðagreiðsla um samninginn fer fram dagana 2. til 7. maí nk. Ný samninganefnd var kjörin á fundinum og tekur við keflinu í kjaramálum.