Samspil uppsagnarfrests og orlofs

Fréttir|2. júlí 2024
Pistill

Anna Rós Sigmundsdóttir, sviðsstjóri lögfræðisviðs KÍ skrifar um samspil uppsagnarfrests og orlofs.

Þegar starfsmanni er sagt upp störfum og uppsagnarfrestur fellur inn í sumarorlofstíma er vinnuveitanda ekki heimilt að ákveða einhliða að starfsmaður skuli taka orlof á uppsagnarfresti. Vilji vinnuveitandi að starfsmaður taki orlof á uppsagnarfresti þá ber vinnuveitanda fyrir fram að óska eftir samþykki starfsmanns fyrir því að fella orlofstöku hans inn í uppsagnarfrestinn. Samþykki starfsmaður ekki að taka orlof á uppsagnarfresti ber vinnuveitanda að gera gjaldfallið og ótekið orlof upp við lok uppsagnarfrests eins og ekkert orlof hafi verið tekið á uppsagnarfresti. Almennt er ekki hægt að þvinga starfsmann til að taka orlof á uppsagnarfresti.

Megintilgangur orlofslaga og ákvæða kjarasamninga um orlof er að veita starfsmanni frí frá störfum og tryggja að hann getið notið orlofið til hvíldar og endurnæringar eins og kostur er. Réttur til uppsagnarfrests er áunninn réttur, líkt og réttur til orlofs. Hlutverk uppsagnarfrests er að gefa aðilum ráðningarsamnings kost á að bregðast við uppsögn þannig að hún verði þeim síður til tjóns. Starfsmaður á því að eiga þess kost að nota uppsagnarfrestinn til að leita sér að nýju starfi. Vinnuveitandi getur því ekki einhliða ákveðið án samþykkis starfsmanns að hann taki orlof sitt á meðan uppsagnarfrestur er að líða.

Starfsmaður og vinnuveitandi geta komist að samkomulagi um töku orlofs á uppsagnarfresti. Séu báðir aðilar samþykkir því að orlof sé tekið á uppsagnarfresti er mikilvægt að báðir aðilar staðfesti það skriflega.

Hafi vinnuveitandi sagt starfsmanni upp störfum og fyrirhuguð er orlofstaka á uppsagnarfresti er mikilvægt að starfsmaður láti vinnuveitanda vita skriflega, t.d. með tölvupósti, vilji starfsmaður ekki taka orlof á uppsagnarfresti og óska eftir að orlof verði gert upp við starfslok eins og ekkert orlof hafi verið tekið á uppsagnarfresti.

Ástæða þess að mikilvægt er báðir aðilar lýsi yfir afstöðu sinni til orlofstöku á uppsagnarfresti skriflega er til að skjalfesta afstöðu beggja aðila til orlofstöku á uppsagnarfresti. Með því eru minni líkur á misskilningi og að upp komi ágreiningur um lokauppgjör við starfslok.