Samskipti, samvinna og traust

Fréttir|8. desember 2021
Pistill

Kristín Björnsdóttir, grunnskólakennari í Sunnulækjarskóla og frambjóðandi til varaformanns Kennarasambands Íslands, skrifar.

Í kennarastarfinu eru góð samskipti lykilatriði. Raunar er það svo að góð samskipti eru lykill að árangri og hamingju í lífinu. Samvinna er annar mikilvægur þáttur því þegar ólíkir einstaklingar nýta mismunandi styrkleika sína til samvinnu að sameiginlegu markmiði getur árangurinn orðið framúrskarandi. Til þess að samvinnan beri árangur þarf að ríkja traust á milli þeirra aðila sem stíga skrefin saman fram á veginn. Árangursríkt samstarf á milli aðildarfélaga Kennarasambandsins er öllu félagsfólki í hag.

Ég legg mikla áherslu á fagleg samskipti og trausta samvinnu og vil koma því til leiðar að kennarar á öllum aldri taki aukinn þátt í félagsstörfum innan Kennarasambandsins. Ungir sem aldnir, reynsluminni jafnt sem reynslumiklir. Að fjölbreyttur hópur kennara taki þátt í að móta stefnu og störf félagsins og sé virkur í menntamálaumræðunni. Ég vil efla samstarf við háskólana og auka veg menntarannsókna. Ég vil fá unga kennara í auknum mæli til þátttöku í félagsstörfunum í nýrri ungliðahreyfingu þvert á aðildarfélögin. Það væri mikið heillaspor fyrir félagið okkar og alla kennara til framtíðar. Í kjölfarið verður rödd kennara enn kraftmeiri og leiðandi í samfélaginu.

Hagur og framtíð allra kennara er mér hjartans mál. Ég óska eftir þínum stuðningi til að vinna markvisst að málefnum allra kennara sem varaformaður Kennarasambands Íslands.