Samskipti á vinnustað

Fréttir|17. nóvember 2020

Vissulega er ágreiningur hluti samskipta og daglegs lífs en það er viljinn og hæfileikinn til að leysa úr slíkum ágreiningi sem gildir.

Virðing er grundvöllur góðra samskipta. Virðing er í raun hæfileikinn til að sýna umburðarlyndi, líta á aðra sem jafningja, setja sig í spor annarra og leysa ágreining á farsælan hátt. Þessir þættir eru ekki meðfæddir heldur ber hverjum og einum að rækta þá með sér, ekki síst þeim sem starfa á fjölmennum vinnustöðum hvar fjölbreytileiki starfsfólks er mikill. Rannsóknir sýna að starfsfólk metur góð samskipti við samstarfsfólk og stjórnendur hvað mest í starfi sínu og að ágreiningur og samskiptavandi valda óþarfa álagi. Kennarar telja almennt að samskipti sín á milli séu góð og að gagnkvæm virðing ríki en engu að síður koma upp ágreiningsmál eða atvik sem leiða til samskiptavanda.
Vissulega er ágreiningur hluti samskipta og daglegs lífs en það er viljinn og hæfileikinn til að leysa úr slíkum ágreiningi sem gildir. Einstaklingar eru ólíkir og mikilvægt að virða ólík viðbrögð við atvikum. Þar skiptir öllu máli að setja sig í spor annarra og bera virðingu fyrir upplifun hvers og eins, hvernig sem hún er.

Samskiptavandi

Samskiptavandi skapast einkum þar sem skipulag er óljóst eða samskiptaferlar í ólagi. Einnig eru vinnustaðir þar sem upplýsingagjöf er ófullnægjandi og álag og tímaskortur mikið mjög útsettir fyrir samskiptavanda. Þessir þættir snúa að verulegu leyti að stjórnun vinnustaðarins og er mikilvægt að haga skipulagi þannig að það skapi ekki óþarfa álag. Kynna þarf verkferla og viðbragðsáætlanir reglulega og hafa skýrar starfslýsingar því mikilvægt er að hver og einn viti hvers er ætlast af honum. Einnig er mikilvægt að upplýsingagjöf sé í lagi og að starfsfólk upplifi sig ekki afskipt. Einn mikilvægasti þáttur stjórnunar er að veita umbun fyrir unnin störf og meta þau að verðleikum. Rannsóknir sýna að umbun sé einn þeirra þátta sem hafi áhrif á streitu í starfi og sé starfsfólki umbunað fyrir vel unnin störf hafi það áhrif á líðan, ánægju og helgun fólks í starfi.

Helgun í starfi merkir að starfsmaður sýni vinnustaðnum hollustu og tryggð. Starfsfólk sem helgar sig vinnustað er tilfinningalega tengt vinnustaðnum og vinnur af ástríðu. Einnig skilar helgun sér í virkari þátttöku á vinnustað og minni fjarveru.

Samskiptavandi getur einnig skapast vegna einstaklingsbundinna þátta. Ágreiningur verður þá persónulegur og getur tengst sjálfsmynd, sanngirni, trausti eða framkomu og/eða hegðun ákveðinna einstaklinga. Faglegur ágreiningur er algengur á vinnustöðum og er oft af hinu góða ef unnið er markvisst úr honum en getur einnig sprottið upp þar sem verkefni og/eða hlutverk eru illa skilgreind. Einnig skiptir máli að almenn umræða um fagmennsku og stefnu skóla sé meðal kennara svo koma megi í veg fyrir faglegan ágreining milli einstaklinga.

Algengur samskiptavandi

Mikilvægt er að hlusta vel, ræða saman augliti til auglitis og forðast að treysta um of á stafræn samskipti. Einnig þurfum við að hugsa áður en við bregðumst við og leyfa fólki að ljúka máli sínu. Ég-boð eru af hinu góða, enda forða þau okkur frá þú-fullyrðingum. Við þurfum að temja okkur að vera skýr og skelegg í máli svo allir skilji það sem við viljum segja og vinda okkur frekar í að ræða málið heldur en að fara í kringum það. Menningarmunur skiptir einnig máli þegar samskiptamál koma upp og stjórnendur verða að gefa honum gaum og átta sig á samhenginu.

Mikilvægt er að virða ólík sjónarmið og huga að því að óyrt samskipti geta líka misskilist. Óyrt samskipti geta verið svipbrigði eða látbragð sem okkur er tamt en þeir sem ekki þekkja okkur skilja ekki eða mistúlka.

Úrræði

Rannsóknir hafa sýnt að kennarar vilja meiri þjálfun og stuðning til að takast á við ný verkefni og gera kröfu um meiri starfsþróun, faglega handleiðslu og að starfið sé skilgreint á skýran hátt. Óskýrar eða engar starfslýsingar valda óþarfa árekstrum eða misskilningi. Skert upplýsingaflæði, óskýrar boðleiðir og tímaskortur eru allt þættir sem valda óþarfa streitu, misskilningi og jafnvel árekstrum þegar kemur að breytingum í skólastarfi. Gagnsæi á vinnustað er ein leið til að minnka hættuna á árekstrum. Um leið og samskipti milli stjórnenda og starfsmanna eru opin og hreinskiptin og stjórnendur veita reglulega endurgjöf og viðurkenna mistök skapast traust og fleiri tækifæri til þróunar.

Enn fremur segja fræðin það lykilatriði að stjórnendur hlusti á starfsmenn og taki hugmyndum þeirra með opnum huga. Krafa um aukna þverfaglega samvinnu er af hinu góða en komið getur til árekstra ef sameiginleg markmið eru óskýr og þjálfun starfsfólks ófullnægjandi.

Samskiptasáttmáli

Samskiptareglur eru alltaf af hinu góða. Starfsfólk upplifir sálrænt öryggi þegar ákveðið er í sameiningu hvaða hegðun er æskileg. Samskiptasáttmáli er líkur siðareglum að því leyti að fólk er hvatt til að fara eftir honum og um leið eru til leikreglur sem hægt er að nýta til að ræða hegðun sem einhverjum hugnast ekki. Samskiptasáttmáli er þannig skýr leiðarvísir sem er þróaður í samvinnu alls starfsfólks og samþykktur af því. Í raun er samskiptasáttmáli góð leið til að móta samskipti á jákvæðan hátt hvort sem er á vinnustöðum þar sem ekki kennir almennt samskiptaerfiðleika og á vinnustöðum þar sem árekstrar eru algengir og álag vegna samskiptavanda mikið.

Kennarasambandið mælir með að skólar útbúi sinn sáttmála bæði meðal starfsfólks og nemenda. Enn fremur mætti hver bekkur eða hópur setja sér samskiptareglur sem byggja á sáttmála skólans.