Samræmd könnunarpróf verða ekki lögð fyrir

Í stað þeirra verður frekari þróun Matsferils, sem er ný verkfærakista fyrir kennara og skóla.
Samræmd könnunarpróf verða ekki lögð fyrir á þessu skólaári. Í stað þeirra verður frekari þróun Matsferils, sem er ný verkfærakista fyrir kennara og skóla.
„Matsferill mun innihalda fjölbreytt og hnitmiðuð rafræn próf og verkefni fyrir grunnskólanemendur og kennara til að fylgjast með námsframvindu nemenda og bæta nám þeirra og námsárangur. Fyrsta verkfæri Matsferils er nú þegar komið í gagnið í skólum landsins undir heitinu „Lesfimi“. Lesfimi eru valfrjáls hraðapróf í lestri sem hafa tekist vel og hefur þátttaka í þeim verið mikil hingað til. Þróuð verða fleiri matstæki á næstu misserum og standa vonir til þess að þau muni nýtast skólunum, kennurum og nemendum betur en samræmd könnunarpróf fyrri tíma,“ segir í frétt um málið á vef stjórnarráðsins.
Í fréttinni segir jafnframt: „Starfshópur um framtíðarstefnu um samræmt námsmat lagði til að samræmd könnunarpróf yrðu felld niður í núverandi mynd þar sem þau henti ekki sem mælikvarði á stöðu nemenda og skólakerfisins í heild. Prófin hafa ekki verið tengd innritun í framhaldsskóla í nokkur ár og eru ekki talin hafa verið nýtt sem skyldi til umbóta. Vægi þeirra hefur því minnkað töluvert. Þar að auki eru vísbendingar um að samræmd könnunarpróf nái ekki að prófa nemendur í ýmsum lykilþáttum aðalnámskrár grunnskóla.“
Kennarasamband Íslands hefur bent á að gera yrði breytingar á matskerfinu og átti KÍ fulltrúa í starfshópnum um framtíðarsýn fyrir samræmt námsmat. Fyrir tæplega ári síðan ályktaði Félag grunnskólakennara um málið og formaður Kennarasambands Íslands skrifaði einnig pistil og voru lokaorðin þessi: „Nú er tækifæri til að hugsa hlutina upp á nýtt. Við erum lögð af stað. Þróttmikil menntaumræða hefur verið um námsmat síðustu ár. Starfshópur hefur greint stöðuna og skilað skýrslu um framtíð samræmds námsmats. Þar skortir ekki góðar hugmyndir. Ekkert er því til fyrirstöðu að nemendur, kennarar og Menntamálstofnun séu höggvin úr snöru þeirra sem sífellt reyna að blása lífi í eitthvað sem að ytra byrði er þegar dautt – og fái í stað þess að einbeita sér að því sem lífvænlegt er.“ Þetta hefur orðið að veruleika.
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, segir framtakið svara betur kalli tímans með nútímalegri viðmiðum. „Matsferill er ný verkfærakista til að leggja heildstætt mat á stöðu nemenda í skóla. Framtakið leysir af hólmi samræmdu prófin til að svara betur kalli tímans með nútímalegri viðmiðum, nemendum og skólum til hagsbóta. Framtíðin liggur í einstaklingsmiðuðu námi og góðu samstarfi við kennara við að þróa einstaklingsmiðuð verkfæri til að meta stöðu nemenda og skapa tækifæri til framþróunar,“ segir ráðherra.
Á vef stjórnarráðsins kemur fram að tímalínan sé sú að gert sé ráð fyrir að útfærsla á fyrirkomulagi samræmds námsmats til framtíðar liggi fyrir í vor. Samráð verði haft við hagsmunaaðila um þróun Matsferils.
Pistill Ragnars Þórs Péturssonar, formanns KÍ: Hugsum samræmd próf upp á nýtt