Samráð um skólaþjónustu formlega hafið

Samstarf mennta- og barnamálaráðuneytis með Kennarasambandinu og aðildarfélögum þess vegna áforma um ný heildarlög um skólaþjónustu hófst með vinnufundi á föstudegi á skrifstofu KÍ.
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins skrifar:
„Í dag, föstudag, hefur staðið yfir vinnudagur mennta- og barnamálaráðuneytis, ásamt fulltrúum aðildarfélaga Kennarasambands Íslands.
Vinnudagurinn er helgaður samráði vegna laga um skólaþjónustu og markar formlegt upphaf þess samstarfs. Á næstu vikum og mánuðum mun ráðuneytið halda samráðsfundi með þeim einstaklingum sem óskuðu eftir að koma að því samráði og á sama tíma mun KÍ vinna áfram úr þeim verkefnum sem starfsdagurinn færði.
Á vordögum munu svo slíkir fundir verða tíðari og markmiðið er skýrt: Að lagt verði fram frumvarp um heiltæka skólaþjónustu á Alþingi haustið 2023.“
Hér er hægt að lesa meira um fyrirhugaðar breytingar mennta- og barnamálaráðherra á menntakerfinu.