Samningur Tækniskólans samþykktur

Fréttir|28. júní 2021

87% þeirra sem greiddu atkvæði sögðu já við samkomulaginu.

Niðurstaða allsherjaratkvæðagreiðslu um samkomulag Kennarasambands Íslands, vegna framhaldsskóla (FF & FS) og Tækniskólans um breytingar og framlengingu á kjarasamningi liggur fyrir og hefur samningurinn verið samþykktur. 

Úrslit hljóða svo:

  • Á kjörskrá voru 196
  • Atkvæði greiddu 119 eða 60,71%
  • Já sögðu 103 eða 86,56%
  • Nei sögðu 11 eða 9,24%
  • Auðir voru 5 eða 4,20%

Skrifað var undir kjarasamninginn 23. júní síðastliðinn. Þá er þessari samningalotu FF & FS lokið og gilda allir samningarnir til 31. mars 2023.