Samningur FL og Sigöldu samþykktur

Fréttir|7. september 2020

Félagar í FL, sem starfa hjá Sigöldu ehf., hafa samþykkt nýjan kjarasamning.

Nýr kjarasamningur Kennarasambands Íslands, vegna Félags leikskólakennara, og Sigöldu ehf. hefur verið samþykktur í allsherjaratkvæðagreiðslu. Skrifað var undir samninginn 24. ágúst síðastliðinn og fór atkvæðagreiðsla fram dagana 3. til 7. september. 

Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar er svohljóðandi: 

  • Á kjörskrá voru 16
  • Atkvæði greiddu 3 eða 18,75%
  • Já sögðu 2 eða 66,67%
  • Nei sögðu 0 eða 0%
  • Auðir voru 1 eða 33,33%

Sigalda ehf. rekur leikskólann Aðalþing í Kópavogi.