Samningur FL og Gefnarborgar samþykktur
Fréttir|23. júní 2022

Úrslit í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna hjá Gefnarborg liggur fyrir.
Félagsmenn FL, sem starfa í leikskólanum Gefnarborg, hafa samþykkt einróma nýjan kjarasamning.
Atkvæðagreiðsla stóð yfir dagana 20. til 22. júní. Alls voru 14 á kjörskrá, átta greiddu atkvæði og sögðu öll já.
Skrifað var undir hinn nýja kjarasamning 13. júní siðastliðinn.
Það er Sunnugarður ehf. sem rekur leikskólann Gefnarborg í Suðurnesjabæ.