Samningur Fjölmenntar samþykktur

Fréttir|28. maí 2021

Alls sögðu 100% þeirra sem greiddu atkvæði já við samningnum.

Niðurstaða allsherjaratkvæðagreiðslu um samkomulag Kennarasambands Íslands, vegna framhaldsskóla (FF & FS) og Fjölmenntar um breytingar og framlengingu á kjarasamningi liggur fyrir og hefur samningurinn verið samþykktur. 

Úrslit hljóða svo:

  • Á kjörskrá voru 17
  • Atkvæði greiddu 13 eða 76,47%
  • Já sögðu 13 eða 100%
  • Nei sögðu 0 eða 0%
  • Auðir voru 0 eða 0%. 

Skrifað var undir kjarasamninginn 26. maí síðastliðinn.