Samningur FF og FS og Verzlunarskólans samþykktur

Fréttir|4. apríl 2025

Félagsmenn, FF og FS, sem starfa við Verzlunarskóla Íslands, samþykktu nýjan kjarasamning með yfirgnæfandi meirihluta greiddra atkvæða.

Kjarasamningur Félags framhaldsskólakennara (FF) og Félags stjórnenda í framhaldsskólum (FS) og Verzlunarskóla Íslands hefur verið samþykktur í allsherjaratkvæðagreiðslu. Skrifað var undir samninginn 1. apríl.

Atkvæðagreiðsla stóð dagana 2.-4. apríl 2025.

Úrslit atkvæðagreiðslunnar

  • Á kjörskrá voru 91
  • Atkvæði greiddu 73 eða 80,22%
  • Já sögðu 72 eða 98,63%
  • Nei sögðu 1 eða 1,37%
  • Auðir voru 0 eða 0%

Samkomulag samþykkt

Félagsfólk FF og FS, sem starfar í Verzlunarskóla Íslands, samþykkti einnig samkomulag um breytingar á ákvæðum 2.1.6.6. og 2.1.6.6.1 í kjarasamningum FF og FS í sér atkvæðagreiðslu, sem einnig lauk í dag. 

Úrslit atkvæðagreiðslunnar

  • Á kjörskrá voru 91
  • Atkvæði greiddu 72 eða 79,12%
  • Já sögðu 71 eða 98,61%
  • Nei sögðu 1 eða 1,39%
  • Auðir voru 0 eða 0%