Samningur FF og FS og Tækniskólans samþykktur

Fréttir|25. mars 2025

Félagsmenn, FF og FS, sem starfa í Tækniskólanum, samþykktu nýjan kjarasamning með yfirgnæfandi meirihluta greiddra atkvæða.

Kjarasamningur Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum og Tækniskólans hefur verið samþykktur í allsherjaratkvæðagreiðslu. Skrifað var undir samninginn 21. mars síðastliðinn. 

Atkvæðagreiðsla hófst 21. mars og lauk á hádegi í dag, 25. mars. 

Úrslit atkvæðagreiðslunnar

  • Á kjörskrá 206
  • Atkvæði greiddu 108 eða 52,43%
  • Já sögðu 94 eða 87,04%
  • Nei sögðu 14 eða 12,96%
  • Auðir voru 0 eða 0%

Samkomulag samþykkt

Félagsfólk Félags framhaldsskólakennara (FF) og Félags stjórnenda í framhaldsskólum (FS), sem starfar í Tækniskólanum, samþykkti einnig samkomulag um breytingar á ákvæðum 2.1.6.6. og 2.1.6.6.1 í kjarasamningum FF og FS í sér atkvæðagreiðslu, sem einnig lauk á hádegi í dag. 

Úrslit atkvæðagreiðslunnar

  • Á kjörskrá voru 206
  • Atkvæði greiddu 108 eða 52,43%
  • Já sögðu 56 eða 51,85%
  • Nei sögðu 50 eða 46,30%
  • Auðir voru 2 eða 1,85%