Samningur FF og FS og Menntaskóla Borgarfjarðar samþykktur
Fréttir|28. mars 2025

Félagsmenn, FF og FS, sem starfa í Menntaskóla Borgarfjarðar, samþykktu nýjan kjarasamning með yfirgnæfandi meirihluta greiddra atkvæða.
Kjarasamningur Félags framhaldsskólakennara (FF) og Félags stjórnenda í framhaldsskólum (FS) og Menntaskóla Borgarfjarðar hefur verið samþykktur í allsherjaratkvæðagreiðslu. Skrifað var undir samninginn 27. mars.
Atkvæðagreiðsla hófst 27. mars og lauk klukkan 14:00 í dag, 28. mars.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar
- Á kjörskrá voru 16
- Atkvæði greiddu 14 eða 87,50%
- Já sögðu 14 eða 100%
- Nei sögðu 0 eða 0%
- Auðir voru 0 eða 0%
Samkomulag samþykkt
Félagsfólk FF og FS, sem starfar í Menntaskóla Borgarfjarðar, samþykkti einnig samkomulag um breytingar á ákvæðum 2.1.6.6. og 2.1.6.6.1 í kjarasamningum FF og FS í sér atkvæðagreiðslu, sem einnig lauk klukkan 14:00 í dag.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar
- Á kjörskrá voru 16
- Atkvæði greiddu 14 eða 87,50%
- Já sögðu 11 eða 78,57%
- Nei sögðu 3 eða 21,43%
- Auðir voru 0 eða 0%