Samningur FF og FS og Fjölmenntar samþykktur

Fréttir|2. maí 2025

Félagsmenn, FF og FS, sem starfa við Fjölmennt, samþykktu nýjan kjarasamning með yfirgnæfandi meirihluta greiddra atkvæða.

Kjarasamningur Félags framhaldsskólakennara (FF) og Félags stjórnenda í framhaldsskólum (FS) og Fjölmenntar hefur verið samþykktur í allsherjaratkvæðagreiðslu. Skrifað var undir samninginn 29. apríl.

Atkvæðagreiðsla stóð dagana 30. apríl til 2. maí 2025.

Úrslit atkvæðagreiðslunnar

  • Á kjörskrá voru 11
  • Atkvæði greiddu 10 eða 90,91%
  • Já sögðu 9 eða 90%
  • Nei sögðu 0 eða 0%
  • Auðir voru 1 eða 10%