Samningar samþykktir og samið við Sólstafi
Félagsmenn í FL sem starfa hjá Sigöldu ehf. hafa samþykkt nýjan kjarasamning. Skrifað var undir samninginn 17. desember síðastliðinn og var hann borinn undir atkvæði dagana 18. til 22. desember. Atkvæðagreiðslu lauk á hádegi í dag.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar var svohljóðandi:
- Á kjörskrá voru 18
- Atkvæði greiddu 5 eða 27,78%
- Já sögðu 5 eða 100%
- Nei sögðu eða %
- Auðir 0 eða 0%
Þá var nýr kjarasamningur FL og Samtaka sjálfstæðra skóla samþykktur í allsherjaratkvæðagreiðslu. Skrifað var undir samninginn 17. desember síðastliðinn og fór atkvæðagreiðsla fram frá föstudegi, 18. desember, til hádegis þriðjudaginn 22. desember.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar var svohljóðandi:
- Á kjörskrá voru 243
- Atkvæði greiddu 52 eða 21,39%
- Já sögðu 45 eða 86,54%
- Nei sögðu 6 eða 11,54%
- Auðir 1 eða 1,92%
Samið við Waldorfleikskólann Sólstafi
Félag leikskólakennara og Waldorfleikskólinn Sólstafir skrifuðu í gær undir nýjan kjarasamning sem verður borinn undir atkvæði í byrjun nýs árs. Atkvæðagreiðslan verður kynnt síðar.