Samningar lausir í ár

Fréttir|1. júlí 2020

Fundað er daglega bæði um sérmál og sameiginleg mál aðildarfélaganna.

Ár er liðið frá því að kjarasamningar Félags leikskólakennara, Félags grunnskólakennara og Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum við Samband íslenskra sveitarfélaga runnu út. Í ellefu mánuði hafa kjarasamningar Skólastjórafélags Íslands og Félags stjórnenda leikskóla verið lausir.

Fundað er daglega, bæði um sérmál og sameiginleg mál aðildarfélaganna, og verða fréttir af viðræðunum uppfærðar reglulega á næstunni.