Samninganefndir hittust í gær

Fréttir|27. nóvember 2019

Fundað var í húsakynnum ríkissáttasemjara í gær.

Samningafundur viðræðunefndar Kennarasambands Íslands og samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga fór fram í húsakynnum ríkissáttasemjara í gær. Farið var yfir þau mál sem tengjast markmiðum samningsaðila í kjarasamningsgerðinni.

Næsti fundur verður mánudaginn 2. desember næstkomandi.