Samninganefnd sveitarfélaganna vildi ekki taka við ályktun FT
Tónlistarskólakennarar fjölmenntu í Karphúsið á ellefta tímanum í morgun til þess að sýna samninganefnd FT samstöðu. Sigrún Grendal, formaður FT, og Þórður Hjaltested, formaður KÍ, ávörpuðu fundinn.
Lesin var upp ályktun fundarins og stóð til að afhenda hana Samninganefnd sveitarfélaganna. Það varð ekki því fulltrúar sveitarfélaganna gáfu ekki kost á slíku og neituðu að taka við ályktun fundarins.
Sigrún Grendal ávarpaði fundarmenn að nýju og sagði fáheyrt með öllu að ekki væri hægt að afhenda ályktun.
Í ályktun fundarins er skorað á sveitarfélögin í landinu að mismuna ekki félagsmönnum í Kennarasambandi Íslands í lanum eftir því í hvernig skólagerð þeir starfa. „Tónlistarskólakennarar og stjórnendur tónlistarskóla geta með engu móti samþykkt að störf þeirra, menntun og reynsla sé ekki falin jafnverðmæt og störf annarra kennara og stjórnenda, segir í ályktuninni.
Félagsmenn í FT hafa samþykkt í allsherjaratkvæðagreiðslu að boða skuli til verkfalls 22. október næstkomandi hafi kjarasamningar ekki náðst. Samningafundur deiluaðila hófst skömmu fyrir hádegi og stendur enn.
Ályktunin hljóðar svo í heild sinni:
Ályktun samstöðufundar haldinn í húsnæði Ríkissáttasemjara Borgartúni 21, 7. október 2014
Tónlistarskólakennarar og stjórnendur tónlistarskóla eru um 5% félagsmanna Kennarasambands Íslands. Þann 2. desember 2013 var skrifað undir viðræðuáætlun samningsaðila en skemmst er frá því að segja að lítið sem ekkert hefur þokast í kjaraviðræðunum á þeim tíu mánuðum sem liðnir eru.
Jafnrétti í launasetningu er eitt af meginsamningsmarkmiðum Sambands íslenskra sveitarfélaga, að tryggja að sambærileg og jafnverðmæt störf séu launuð með sama hætti óháð kynferði, búsetu eða stéttarfélagsaðild . Hér er um að ræða lítinn hóp innan eins og hins sama stéttarfélags – Kennarasambands Íslands.
Kjarastefna Félags tónlistarskólakennara - og Kennarasambands Íslands - er skýr: laun og önnur starfskjör tónlistarskólakennara og stjórnenda í tónlistarskólum skulu standast samanburð við kjör annarra sérfræðinga og stjórnenda.
Tónlistarskólakennarar og stjórnendur urðu af einni samningalotu sökum gildistíma kjarasamnings þeirra á árinu 2008, en samningar voru ekki lausir fyrr en eftir efnahagshrunið. Við krefjumst þess að launakjör okkar verði leiðrétt og færð aftur til samræmis við laun annarra kennarra og stjórnenda.
Við skorum á sveitarfélögin í landinu að mismuna ekki félagsmönnum Kennarasambands Íslands í launum eftir því í hvernig skólagerð þeir starfa.
Tónlistarskólakennarar og stjórnendur tónlistarskóla geta með engu móti samþykkt að störf þeirra, menntun og reynsla sé ekki talin jafnverðmæt og störf annarra kennara og stjórnenda.
Við þurfum öll hvert á öðru að halda - jafnrétti í launasetningu er okkar krafa.