Samningafundur stóð stutt yfir
Fréttir|16. október 2014
Fundur samninganefndar Félags tónlistarskólakennara og samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga var stuttur í dag. Samninganefnd FT kemur saman á morgun til þess að fara stöðu mála í heild sinni. Ríkissáttasemjari hefur boðað samningsaðila til fundar í Karphúsinu klukkan 14 á morgun.
Náist ekki samningar á næstu dögum skellur á verkfall Félags tónlistarskólakennara næstkomandi miðvikudag, 22. október.