Samningafundur klukkan 11
Fréttir|18. nóvember 2014
Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir FT og sveitarfélaganna til fundar í Karphúsinu klukkan 11 í dag. Samningafundur hófst klukkan 10 í gærmorgun og lauk fundinum á tíunda tímanum í gærkvöld.
Verkfall tónlistarkennara hefur staðið yfir í fjórar vikur á morgun en það hófst 22. október. Kennarasambandið efnir til „Samstöðufundar til stuðnings tónlistarkennurum" í Hörpu klukkan fimm í dag.