Samningafundur hófst klukkan tíu

Fréttir|21. október 2014

Samningafundur í kjaradeilu Félags tónlistarskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga hófst klukkan 10 í morgun. Fundað var síðdegis í gær en án árangurs. Samninganefnd sveitarfélaganna lagði fram tilboð í gær sem að mati samninganefndar FT var lakara en tilboð frá 16. október. 

Sigrún Grendal, formaður FT, sagði í morgun að það væru vonbrigði að stétt tónlistarskólakennara skuli þurfa að grípa til þess óyndisúrræðis sem verkfall er. Náist ekki samningar ekki í dag skellur á verkfall á morgun, miðvikudaginn 22. október.

Tónlistarskólakennarar efna til samræðufundar í Kaldalóni í Hörpu klukkan 19.30 í kvöld. Þar munu Sigrún Grendal, formaður FT, Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld og dr. Ágúst Einarsson flytja ávörp. Þá verða pallborðsumræður og tónlistaratriði. Fundurinn verður sendur beint út á netinu, á slóðinni netsamfelag.is.

Tónlistarskólakennarar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn í kvöld.