Samningafundur hjá FSL á morgun en hjá FT í næstu viku
Fréttir|11. ágúst 2014
Samningaviðræðum Félags stjórnenda leikskóla og Sambands íslenskra sveitarfélaga verður framhaldið á morgun en fundur hefur verið boðaður í húsakynnum Ríkissáttasemjara klukkan 11.
Samningafundur hjá Félagi tónlistarskóla hefur verið boðaður í næstu viku, þriðjudaginn 19. ágúst.
Bæði félögin hafa setið einn samningafund eftir viðræðuhlé sem var gert vegna sumarleyfa.
FT vísaði kjaradeilu sinni til sáttasemjara 12. júní síðastliðinn og FSL vísaði sínum kjaraviðræðum til sáttasemjara 1. júlí síðastliðinn.