Samningafundur boðaður í fyrramálið
Samningafundi Félags tónlistarskólakennara (FT) og Samninganefndar sveitarfélaganna (SNS) lauk á fjórða tímanum í dag. Næsti fundur hefur verið boðaður á morgun klukkan 13.
„Ég bind vonir við að við höfum þokast eilítið áfram hvað varðar viðhorf og vinnubrögð í kjarasamningsgerð á þeim þrettán árum sem eru liðin frá því að tónlistarkennarar fóru í sitt fyrsta verkfall – og að okkur takist í sameiningu að ljúka þessu verkefni farsællega fyrir 22. október,“ segir Sigrún Grendal, formaður FT.
Í kjölfar niðurstöðu atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna í FT um boðun verkfalls 22. október næstkomandi ákváðu tónlistarskólakennarar og stjórnendur að efna til samstöðufundar í húsakynnum Ríkissáttasemjara í morgun, hálfri klukkustund fyrir boðaðan samningafund sem átti að hefjast klukkan 11.
Eins og greint hefur verið frá var samstöðufundurinn haldinn án viðveru Samninganefndar sveitarfélaganna og var fundarmönnum nokkuð brugðið vegna þess.
Við upphaf samningafundar, sem hófst að loknum samstöðufundinum, kom fram að formaður SNS gegnir því hlutverki að ræða við fjölmiðla. Formaðurinn var hins vegar fjarverandi og töldu nefndarmenn í SNS sig ekki hafa umboð til að tjá sig við fjölmiðla og þar sem fulltrúar fjölmiðlanna voru viðstaddir samstöðufundinn báðust þeir undan að taka við ályktun fundarins.
Samninganefnd FT kom ályktuninni til skila á samningafundinum í dag. Auk þess var SNS afhent ályktun frá sex svæðisþingum tónlistarskóla sem haldin voru um land allt í september.
Sigrún segir samninganefnd FT munu gera allt sem í hennar valdi stendur til að ná samningum án þess að þurfa að beita verkfallsvopninu. „Ég leyfi mér að vera bjartýn og horfa á það sem jákvætt er. Með tilliti til þess að eitt af meginsamningsmarkmiðum SNS kveður á um jafnrétti í launasetningu, að tryggja að sambærileg og jafnverðmæt störf séu launuð með sama hætti, þá tel ég fullkomlega raunhæft að aðilar geti náð saman áður en verkfall skellur á,“ segir Sigrún Grendal, formaður FT.