Sammála um að standa eigi við gerða samninga

Frambjóðendur tíu stjórnmálaflokka skilja og styðja kröfur kennara í yfirstandandi kjaraviðræðum. Líflegar umræður fóru fram á opnum fundi Kennarasambandsins um menntamál í gær.
Kennarasambandið kallaði stjórnmálafólk á sinn fund til þess að ræða skóla- og menntamál – nú þegar stutt er til þingkosninga. Tíu frambjóðendur, flokka sem bjóða fram á landsvísu, mættu til fundarins.
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, stýrði fundinum. Tæplega 200 kennarar mættu og annað eins fylgdist með í streymi á Facebook-síðu KÍ.
Umræðuefni fundarins voru fjölmörg, svo sem um brúun bilsins á milli fæðingarorlofs og leikskóla, svokallað annað rekstrarform í skólastarfi, lagaumgjörð tónlistarskóla og fleira. Fram kom að allir frambjóðendurnir sögðu sinn flokk vilja auka vægi list- og verkgreina á öllum skólastigum.
Stuðningur yfir allan bekkinn
Spurt var um meginkröfu Kennarasambandsins í yfirstandandi kjaraviðræðum; kröfuna um að staðið verði við samkomulag frá 2016 um jöfnun launa milli markaða.
Skemmst er frá því að segja að frambjóðendurnir tíu lýstu yfir stuðningi við kjarabaráttu kennara og sögðu að standa ætti við gerða samninga.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingkona og frambjóðandi Samfylkingar, sagði enga spurningu að standa ætti við gerða samninga. Hún sagði málið snúast um taka þá pólitísku ákvörðun að lyfta ákveðinni stétt, í þessu tilfelli kennurum, enda hafi slíkt tíðkast í löndunum í kringum okkur. „Forseti ASÍ gerir ekki athugasemdir við kröfur kennara. Það er mikilvægt," sagði Þórunn.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, sagði samfélagið á vondum stað þegar ekki væri staðið við gerða samninga. Hún talaði um virðismat kvennastarfa og sagði að skort hefði á pólitíska forystu. Samhent ríkisstjórn, sagði Þorgerður, gæti leyst þetta mál á innan við ári.
Bryndís Haraldsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokks, sagði já við spurningunni um að standa ætti við loforðið frá 2016. Næsta skref í málinu væri að jafna kjör, sagði Bryndís en bætti svo við að þar væru ekki bara launin undir heldur kjör. Vísaði Bryndís þar til réttinda opinberra starfsmanna sem hún sagði betri en fólks á almennum vinnumarkaði.
Skilningur á kröfugerð
Jakob Frímann Magnússon, Miðflokki, sagði ólíðandi að ekki væri staðið við gefin fyrirheit. Hrafnhildur Sigurðardóttir, Lýðræðisflokki, tók í sama streng og sagði að horfa yrði til þess að kennarar væru grundvallarstétt. Ásthildur Lóa Þórhallsdóttir, þingkona Flokks fólksins, sagði að standa ætti við samninginn og engin nauðsyn væri á að virðismeta störf kennara. Halldóra Mogensen, þingkona Pírata, og María Pétursdóttir, Sósíalistum, sögðu mikilvægt að gengið væri til samninga við kennarastéttina, enda væri samfélagslegt mikilvægi stéttarinnar mikið.
Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, sagðist hafa fullan skilning á baráttu kennara og gera hefði átt miklu meira á síðustu átta árum. Kvennastörf væru hins vegar vanmetin með kerfisbundnum hætti og afar mikilvægt að störf kennara séu metin að verðleikum.
Barna- og menntamálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, Framsóknarflokki, sagði að sér væri ljúft og skylt að lýsa yfir stuðningi við kröfur kennara. Ráðherrann sagði þó að óvíst væri hvað þyrfti langan tíma til að ná markmiðinu. Hins vegar væri hann beita sér fyrir því að nýr kjarasamningur kennara næðist áður en ný ríkisstjórn tekur við völdum að loknum kosningum.
Upptaka af fundinum
Hægt er að horfa á fundinn á Facebook-síðu KÍ. Hljóðgæði eru ekki upp á tíu í fyrri hlutanum.
JÁ EÐA NEI?
Fundarstjóri lagði nokkrar einfaldar spurningar fyrir hópinn og mátti bara svara með jái eða neii.
Telur þinn flokkur samræmt lokapróf vera réttan mælikvarða á skólagöngu í grunnskóla?
Flokkur fólksins
NEI
Framsóknarflokkurinn
NEI
Lýðræðisflokkurinn
JÁ
Miðflokkurinn
JÁ/NEI
Píratar
NEI
Samfylkingin
NEI
Sjálfstæðisflokkurinn
NEI
Sósíalistaflokkurinn
NEI
Viðreisn
NEI
Vinstri hreyfingin grænt framboð
NEI
Telur þinn flokkur samræmt lokapróf vera réttan mælikvarða á skólagöngu í framhaldsskóla?
Flokkur fólksins
NEI
Framsóknarflokkurinn
NEI
Lýðræðisflokkurinn
JÁ
Miðflokkurinn
NEI
Píratar
NEI
Samfylkingin
NEI
Sjálfstæðisflokkurinn
NEI
Sósíalistaflokkurinn
NEI
Viðreisn
NEI
Vinstri hreyfingin grænt framboð
NEI
Telur þinn flokkur að fjölga þurfi sérskólum á öllum skólastigum?
Flokkur fólksins
JÁ
Framsóknarflokkurinn
JÁ
Lýðræðisflokkurinn
JÁ
Miðflokkurinn
JÁ
Píratar
JÁ
Samfylkingin
NEI
Sjálfstæðisflokkurinn
JÁ
Sósíalistaflokkurinn
NEI
Viðreisn
JÁ
Vinstri hreyfingin grænt framboð
NEI
Styður þinn flokkur skóla án aðgreiningar?
Flokkur fólksins
JÁ
Framsóknarflokkurinn
JÁ
Lýðræðisflokkurinn
NEI
Miðflokkurinn
JÁ
Píratar
JÁ
Samfylkingin
JÁ
Sjálfstæðisflokkurinn
NEI
Sósíalistaflokkurinn
JÁ
Viðreisn
JÁ
Vinstri hreyfingin grænt framboð
JÁ
Á að lögfesta leikskólastigið og gera það að skylduverkefni sveitarfélaga?
Flokkur fólksins
JÁ
Framsóknarflokkurinn
JÁ
Lýðræðisflokkurinn
NEI
Miðflokkurinn
JÁ
Píratar
JÁ
Samfylkingin
JÁ
Sjálfstæðisflokkurinn
JÁ
Sósíalistaflokkurinn
JÁ
Viðreisn
JÁ
Vinstri hreyfingin grænt framboð
JÁ
Telur þinn flokkur vel hafa tekist til þegar námstími til stúdentsprófs var færður niður í þrjú ár?
Flokkur fólksins
NEI
Framsóknarflokkurinn
NEI
Lýðræðisflokkurinn
NEI
Miðflokkurinn
NEI
Píratar
NEI
Samfylkingin
NEI
Sjálfstæðisflokkurinn
JÁ
Sósíalistaflokkurinn
NEI
Viðreisn
JÁ
Vinstri hreyfingin grænt framboð
NEI
Vill þinn flokkur auka vægi list- og verkgreina á öllum skólastigum?
Flokkur fólksins
JÁ
Framsóknarflokkurinn
JÁ
Lýðræðisflokkurinn
JÁ
Miðflokkurinn
JÁ
Píratar
JÁ
Samfylkingin
JÁ
Sjálfstæðisflokkurinn
JÁ
Sósíalistaflokkurinn
JÁ
Viðreisn
JÁ
Vinstri hreyfingin grænt framboð
JÁ
Styður þinn flokkur bann á farsímum í skólastarfi?
Flokkur fólksins
JÁ
Framsóknarflokkurinn
NEI
Lýðræðisflokkurinn
JÁ
Miðflokkurinn
JÁ/NEI
Píratar
JÁ/NEI
Samfylkingin
NEI
Sjálfstæðisflokkurinn
JÁ
Sósíalistaflokkurinn
JÁ/NEI
Viðreisn
JÁ
Vinstri hreyfingin grænt framboð
JÁ

Frambjóðendurnir að loknum fundi