Samkomulag við Flugfélagið Erni
Fréttir|29. janúar 2015
Sala á gjafabréfum fyrir Flugfélagið Erni er hafin á Orlofsvef KÍ. Um er að ræða fjórar flugleiðir; Vestmannaeyjar, Höfn í Hornafirði, Húsavík og Bíldudal.
Verð á flugleiðunum er eftirfarandi (flugávísun):
- Vestmannaeyjar kr. 7.500,-
- Höfn í Hornafirði kr. 9.800,-
- Húsavík kr. 9.800,-
- Bíldudalur kr. 9.200,-
Engar fjöldatakmarkanir eru á þessum flugávísunum en vert er að taka fram að þær gilda aðeins fyrir félagsmenn KÍ, ekki maka þeirra eða börn.
Ekki er hægt að nota þessa flugmiða í eftirfarandi flugi hjá Flugfélaginu Erni á háannatímabilinu frá 1. júní til 31. ágúst 2015:
- Kl. 8.55 (morgunflug) Reykjavík -- Höfn; mánudaga, þriðjudaga og föstudaga.
- Kl. 18.55 (síðdegisflug) Höfn -- Reykjavík, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga.
- Öll flug: Reykjavík -- Vestmannaeyjar og Vestmannaeyjar -- Reykjavík um verslunarmannahelgi ár hvert. (Frá föstudegi til mánudags þá helgi).
Að lokum skal þess getið að Orlofssjóður hefur gert samning við Hótel Vestmannaeyjar um afslátt á gistingu fyrir félagsmenn KÍ. Hótelmiðar verða settir í sölu á næstu dögum.
Sjá nánar á Orlofsvefnum.