Samkomulag um vinnumat í Tækniskólanum

Fréttir|15. maí 2015

Félag framhaldsskólakennara og samninganefnd ríkisins undirrituðu fyrr í dag samkomulag um vinnumat fyrir kennara í Tækniskólanum. Vinnumatið er hluti kjarasamnings sem var samþykktur árið 2014. 

Framhaldsskólakennarar felldu vinnumat í atkvæðagreiðslu í febrúar síðastliðnum. Samið var um nýtt vinnumat fyrir framhaldsskólakennara í síðasta mánuði og var það samþykkt í atkvæðagreiðslu. Þá lá fyrir að gera þyrfti nýtt vinnumat fyrir kennara í Tækniskólanum og var gengið frá því, eins og fyrr segir, í morgun. 

Kennarar í Tækniskólanum greiða atkvæði um vinnumatið og hefst atkvæðagreiðslan klukkan 16 í dag, föstudaginn 15. maí, og lýkur næstkomandi þriðjudag, 19. maí 2015.