Samkomulag um nýtt vinnumat FF og FS
Fulltrúar Kennarasambands Íslands og samninganefndar ríkisins undirrituðu í gær samkomulag um nýtt vinnumat félagsmanna í framhaldsskólum. Gerð nýja vinnumatsins var í höndum verkefnisstjórnar, sem var skipuð af hálfu FF og FS þeim Elnu Katrínu Jónsdóttur, Reyni Þór Eggertssyni og Stefáni Andréssyni. Verkefnisstjórnin starfaði samkvæmt ákvæðum kjarasamnings KÍ/framhaldsskóla frá 4. apríl 2014. Félagar í FF og FS samþykktu nýjan kjarasamning í apríl í fyrra með yfirgnæfandi meirihluta greiddra atkvæða. Í kjarasamningnum segir að nýtt vinnumat skuli tekið upp frá og með skólaárinu 2015-2016.
Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, segir mikla vinnu liggja að baki nýja vinnumatinu. „Verkefnisstjórnin hefur lagt nótt við dag við að ljúka verkinu. Það er seinna á ferðinni en til stóð en nægilega tímanlega svo félagsmenn geti velt vinnumatinu fyrir sér og mótað afstöðu til þess.“
Verkefnisstjórnin hefur frá upphafi haft opið vinnuferli. Upplýsingar um framvindu verksins hafa verið settar á síðuna verkefnisstjórn.is eins reglulega og kostur var á. Þá fór verkefnisstjórnin hringferð um landið, efndi til kynningarfunda á reikniverki vinnumatsins, veitti upplýsingar og svaraði fyrirspurnum félagsmanna.
„Við samþykktum í atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning að fara í þessa þessa vegferð og taka þátt í að endurhanna umbúnað um þungamiðju starfs okkar; það er kennsluna og undirbúning hennar. Við sem höfum tekið þátt í þessari vinnu, auk fjölmargra sem lögðu okkur lið með ýmsum hætti, unnum að verkefninu af fullum heilindum og með hagsmuni félagsmanna að leiðarljósi. Niðurstaðan er samkomulag sem felur í sér eftirgjöf af beggja hálfu eins og gengur,“ segir Guðríður.
Kynning og atkvæðagreiðsla
Næstu tvær vikurnar munu Guðríður og fulltrúar úr samninganefnd fara um landið og kynna nýja vinnumatið. Allir framhaldsskólar landsins verða heimsóttir og hvetur Guðríður félagsmenn til að kynna sér nýja vinnumatið og mæta á kynningarfundi í sínum skólum.
Guðríður mun jafnframt óska þess að kjörstjórn efni til allsherjaratkvæðagreiðslu um samkomulagið og hefjist hún eigi síðar en 23. febrúar næstkomandi. Nánari upplýsingar verða sendar út fljótlega en niðurstaða atkvæðagreiðslu þarf að vera ljós fyrir mánaðamót. Þá vill Guðríður koma á framfæri þökkum til þeirra fjölmörgu félagsmanna sem tóku sæti í vinnumatsnefndunum og störfuðu með verkefnisstjórninni.