Samkomulag um launahækkanir og viðræðuáætlun

Fréttir|31. október 2016

Kennarasamband Íslands, vegna framhaldsskólans, og samninganefnd ríkisins undirrituðu í morgun samkomulag um að allar frekar hækkanir, sem gerðardómur dæmdi félagsmönnum BHM, gildi fyrir framhaldsskólakennara á árinu 2016 og 2017 – að því gefnu að friðarskylda ríki af hálfu Félags framhaldsskólakennara (FF) og Félags stjórnenda í framhaldsskólum (FS) út október á næsta ári.

Í 14. grein kjarasamnings framhaldsskólakennara frá 4. apríl 2014 er kveðið á um að verði samið um frekari almennar launahækkanir skuli sambærileg breyting gilda fyrir félagsmenn KÍ – framhaldsskóla. Fyrir árið 2016 segir að útfærsla ákvæðisins skuli taka mið af samningslengd.

Launatafla framhaldsskólakennara hefur verið hækkuð tvisvar sinnum á samningstímanum á grundvelli ofangreinds ákvæðis, meðal annars í kjölfar þess að gerðardómur ákvarðaði launabreytingar til handa félagsmönnum BHM og gildir sá dómur út ágúst 2017. Kjarasamningur FF/FS rennur hins vegar út í dag 31. október.

Launatafla KÍ – framhaldsskóla hækkar því um 3,5% frá 1. september 2016 og 1,65% koma því til viðbótar en það verður nýtt í endurbætur vinnumats sem munu taka gildi frá 1. janúar 2017 og skal útfærsla þess liggja fyrir 16. desember næstkomandi.

Samninganefnd félagsins var einróma sammála því að samkomulag af þessu tagi væri skynsamlegt á þessum tímapunkti, ekki síst í ljósi þess að óvissa ríki um afdrif lífeyrismála opinberra starfsmanna og rammasamkomulag um vinnumarkaðslíkan.

Samkomulagið er á engan hátt ígildi kjarasamnings, því samhliða undirritun samkomulagsins var ný viðræðuáætlun undirrituð. Enn verður unnið að gerð nýs kjarasamnings og fundað verður reglulega, eins og áður, um þá kröfugerð sem FF/FS lagði fram 23. ágúst síðastliðinn.

Samkomulagið í heild.