Samkomulag um frestun á niðurfellingu orlofsdaga

Fréttir|23. mars 2023

Náðst hefur samkomulag um að heimild til frestunar á niðurfellingu orlofs hjá félagsmönnum í FL, FSL og SÍ. Sama er uppi teningnum hjá félagsmönnum í FF og FS en þar er ríkið samningsaðili. Þetta á ekki við um félagsmenn FG og FT.

Breytingar voru gerðar í orlofskafla í kjarasamningum Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla og Skólastjórafélagi Íslands í samningum sem voru undirritaðir í fyrra. Var gert ráð fyrir að flutningur orlofs milli ára yrði óheimill frá og með 1. maí næstkomandi.

Nú hefur náðst samkomulag milli Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda í leikskólum og Skólastjórafélagsins annars vegar og Sambands íslenskra sveitarfélaga hins vegar að fresta fyrirhugaðri niðurfellingu orlofsdaga. Skýringarákvæði í kjarasamningi hefur verið breytt og þar segir meðal annars:

Í þeim tilfellum sem starfsfólki hefur ekki verið gert kleift að taka uppsafnað orlof samkvæmt skýringartexta við gr. 4.3.1, verði þeim aðstæðum mætt af hálfu vinnuveitenda með gerð skriflegs samkomulags við viðkomandi starfsfólk um hvernig töku uppsafnaðs orlofs verði lokið. Gerð samkomulags skal lokið eigi síðar en 15. apríl 2023.
Náist slíkt samkomulag ekki, skal vinnuveitandi tilkynna starfsmanni eigi síðar en 1. maí 2023 hvernig orlofstöku skuli háttað þannig að tryggt verði að starfsmaður nái að ljúka töku uppsafnaðs orlofs.

Félagsmenn sem eiga uppsafnað orlof eru hvattir til að ræða við sína yfirmenn og ganga frá samkomulagi um hvernig orlofstöku skal háttað.

Frestur í framhaldsskólanum

Ákvörðun um frest á niðurfellingu orlofs hefur einnig verið tekin af hálfu ríkisins og á því við um félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum.

Í bréfi frá fjármálaráðuneytinu segir að ákvörðun hafi verið tekin um „að framlengja heimild til frestunar á niðurfellingu orlofs, sem að hámarki getur verið 60 dagar, um eitt ár eða til 30. apríl 2024“.

Frestur þessi er veittur vegna utanaðkomandi aðstæðna á samningstímanum.

Fjármálaráðuneytið vill jafnframt árétta mikilvægi þess að starfsfólk taki orlof, hvílist og endurnærist. Því sé mikilvægt að:

  • upplýsa starfsfólk um stöðu orlofs
  • hvetja starfsfólk til að senda inn orlofsóskir hafi það nú þegar ekki verið gert
  • ákveða sumarorlof starfsfólks fyrir 31. mars nema sérstakar aðstæður hamli
  • gera tímasettar áætlanir um úttekt uppsafnaðs orlofs hjá þeim sem það á við

Grunnskólinn og tónlistarskólinn standa utan

Þess ber að geta að fyrrnefndir kaflar um orlofsmál eiga ekki við félagsmenn KÍ sem eiga aðild að Félagi grunnskólakennara og Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum.

Ákvæði um niðurfellingu orlofs er ekki að finna í kjarasamningum FG og FT.

Hjá þessum félögum hefur því ekki orðið breyting er varðar færslu orlofs milli ára.

 Meira um orlofsmál á vef KÍ