Samkomulag um breytingar á kjarasamningi FSL
Fréttir|21. júlí 2018

Samstarfsnefnd Félags stjórnenda leikskóla og Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa gert samkomulag um breytingar á gildandi kjarasamningi.
Samstarfsnefnd Félags stjórnenda leikskóla og Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa gert samkomulag um breytingar á gildandi kjarasamningi.
Helstu breytingar eru þessar:
- Kjarasamningur aðila frá 1. júní 2015 framlengist og gildir hann til 31. júlí 2019.
- Aðilar eru sammála um að gera eftirfarandi breytingar á launatöflu A-4 sem gildir til og með 31. júlí 2019 eða út gildistíma kjarasamnings: Frá 1. júní 2018 hækka launatöflur leikskólastjóra og aðstoðarleikskólastjóra um 4,5% í stað 2,8% hækkunar sem samið var um með vísan í fundargerð 11. fundar samstarfsnefndar SNS og FSL frá 17. mars 2017.
- Við launasetningu leikskólastjóra og aðstoðarskólastjóra skulu grunnlaun vera að lágmarki 3% hærri en mánaðarlaun sem hann ella fengi sem deildarstjóri í lfl. 235 skv. ákvæðum í kjarasamningi Félags leikskólakennara sem gildir frá 1. júní 2015 til 30. júní 2019. Um er að ræða tímabundna ákvörðun sem gildir frá 1. ágúst 2018 til 31. júlí 2019.