Samkeppni um jafnréttisverkefni í skólum

Fréttir|26. nóvember 2025

Jafnréttisnefnd KÍ boðar til samkeppni um jafnréttisverkefni sem notuð hafa verið í kennslu í skólum hér á landi.

Samkeppnin nær til allra skólastiga og geta jafnréttisverkefnin verið allt frá þemaverkefnum heilla skóla eða árganga til verkefna einstakra kennara fyrir bekki eða afmarkaðan hóp nemenda. Verkefni þurfa að rúmast undir hatti alhliða jafnréttis og grunnþættinum jafnrétti. 

Þátttaka er einföld, það þarf bara að fara á vefsíðu KÍ og undir flipanum kennarastarfið er slóð á Jaka. Þar er hægt að finna verkefnablöð, lýsingu, leiðbeiningar og fleira. Verkefnið sendist síðan með tölvupósti á jaki@ki.is.  

Mikilvægt er að gæta samræmis milli heita viðhengja og nafns verkefnis svo að dómnefnd átti sig á tengslum viðhengja og skráningar.

  • Opnað verður fyrir skráningu 15. desember næstkomandi og lokað fyrir 15. febrúar 2026.  

Með samkeppninni er ætlunin að vekja alla sem starfa í skólum til meðvitundar um mikilvægi grunnþáttarins jafnrétti fyrir allt skólastarf og hvetja skóla landsins til að setja jafnrétti á dagskrá. Með innsendingu í samkeppnina er samþykki gefið um að verkefni birtist á vef jafnréttisnefndar KÍ því hugmyndin er að safna saman verkefnum úr ólíkum áttum og mynda vísi að samlagi sem um leið auðveldar kennurum að nálgast fjölbreytt úrval verkefna. 

Dómnefnd skipuð þremur sérfræðingum á sviði alhliða jafnréttis mun taka til starfa eftir að skilafrestur rennur út. 

Jafnréttisnefnd KÍ hvetur alla kennara og stjórnendur skóla til að senda inn verkefni sem gætu átt heima undir hatti grunnþáttarins jafnrétti. 

Verkefni þurfa að rúmast undir hatti alhliða jafnréttis og grunnþættinum jafnrétti. myndatexti: Með samkeppninni er ætlunin að vekja alla sem starfa í skólum til meðvitundar um mikilvægi grunnþáttarins jafnrétti.