Samkeppni um jafnréttishugtök í fullum gangi

Fréttir|23. febrúar 2021

Hugtök um jafnrétti eru efniviður hugverkasamkeppni sem jafnréttisnefnd KÍ (JAKI) hefur hleypt af stokkunum. Markmið keppninnar er að hvetja nemendur og kennarar til að kynna sér og vinna með hugtök og hugmyndir um jafnrétti. Samkeppnin fer fram á öllum skólastigum og nemendur hafa frjálsar hendur við sköpun verkanna.

Jafnréttisnefnd KÍ (JAKÍ) stendur nú að nýstárlegri og spennandi hugverkakeppni þar sem jafnréttishugtök eru lögð til grundvallar. Með keppninni vill JAKI vekja skólasamfélagið til vitundar um mikilvægi jafnréttis á öllum sviðum.

Samkeppnin er komin í fullan gang og ljóst að áhugi ríkir í skólasamfélaginu, kennarar hafa þegar sett sig í samband við JAKI og fyrstu verkin eru væntanleg. Jafnréttisnefnd hvetur kennara til kynna jafnréttishugtökin og samkeppnina fyrir nemendum. 

Nánar um samkeppnina

Samkeppnin fer fram á öllum skólastigum og eru efnistök frjáls; nemendur, einn eða fleiri saman, velja sér hugtak og vinna síðan að sköpun sem getur verið smásaga, örleikrit, myndverk, tónverk, rapplag, dans, teikning, hlaðvarp eða hvaðeina sem upp í hugann kemur.

Skilafrestur á hugverkum er 8. mars næstkomandi og fá sigurvegarar í hverjum keppnisflokki spjaldtölvu í verðlaun. 

Samkeppnin fer sem fyrr segir fram á öllum skólastigum og skiptist í eftirfarandi flokka:

  • Leikskólinn
  • Grunnskólinn 1. til 4. bekkur
  • Grunnskólinn 5. til 7. bekkur
  • Grunnskólinn 8. til 10. bekkur
  • Framhaldsskólinn

Nemendur í tónlistarskólum teljast til nemenda á fyrrgreindum skólastigum eftir aldri.

 

Praktískar upplýsingar