Samkeppni um forsíðumynd Ferðablaðsins 2017
Fréttir|10. janúar 2017

Orlofssjóður Kennarasambands Íslands auglýsir eftir ljósmynd til að prýða forsíðu Ferðablaðsins 2017.
Orlofssjóður Kennarasambands Íslands auglýsir eftir ljósmynd til að prýða forsíðu Ferðablaðsins 2017.
Þetta er í fjórða skipti sem Orlofssjóður efnir til samkeppni af þessu tagi og hefur þátttaka verið mjög góð frá upphafi. Verðlaun fyrir bestu forsíðumynd eru 45 þúsund krónur.
Skilafrestur á ljósmyndum er 10. febrúar 2017 og eru þátttakendur beðnir að senda ljósmyndir á netfangið utgafa@ki.is. Upplýsingar um myndefni og ljósmyndara þurfa að fylgja með. Munið að gæta að því að senda myndirnar í góðri upplausn.
Ferðablaðið 2016 í PDF-útgáfu.