Samið við þrjá einkarekna framhaldsskóla

Fréttir|20. júní 2023

Félag framhaldsskólakennara og Félag stjórnenda í framhaldsskólum hafa skrifað undir kjarasamninga við Menntaskóla Borgarfjarðar, Verzlunarskóla Íslands og Tækniskólann.

Samningar hafa náðst við Menntaskóla Borgarfjarðar, Tækniskólann og Verzlunarskóla Íslands og standa nú yfir atkvæðagreiðslur um alla þrjá samningana. Atkvæðagreiðslu um samning við Versló lýkur á morgun, miðvikudaginn 21. júní, kl. 12:00 en í hinum skólunum tveimur lýkur atkvæðagreiðslu fimmtudaginn 22. júní, kl. 15:00.

Gaman er að segja frá því að á hádegi í dag var kosningaþátttaka í Versló tæplega 52%.

Seint í gærkvöldi var skrifað undir samninga í Tækniskólanum. Samningagerðin að þessu sinni var flóknari en oft áður því samhliða miðlægum kjarasamningi var einnig endurnýjaður stofnanasamningur við skólann.

Nú í morgun var svo samningur við Menntaskóla Borgarfjarðar undirritaður og þar með er þess vænst að ansi langri samningalotu við þessa einkareknu framhaldsskóla sé að ljúka. Eins og sagt er frá á Mbl.is í morgun telur formaður FF að fjármögnun ríkisins á einkareknu skólunum hafi tafið samningaviðræðurnar. Það er mjög óvanalegt að viðræður við einkareknu skólana dragist svo langt aftur úr samningum KÍ við ríkið.