Samið við Samtök sjálfstæðra skóla

Fréttir|5. september 2014

Félag leikskólakennara skrifaði í morgun undir nýjan kjarasamning við Samtök sjálfstæðra skóla. Fyrir hönd FL ritaði Haraldur Freyr Gíslason, formaður, undir samninginn en fyrir hönd Samtaka sjálfstæðra skóla þær Áslaug Hulda Jónsdóttir og Kristín Þóra Harðardóttir, lögfræðingur Samtaka atvinnulífsins.

Samningurinn er samhljóða nýgerðum kjarasamningi FL við Samband íslenskra sveitarfélaga með þeim fyrirvara þó að starfsmenn sem hafa haft kjör umfram kjarasamning halda þeim. Samningurinn, sem nær til fjörutíu og eins sjálfstætt starfandi leikskóla, verður borinn undir atkvæði starfsmanna skólanna á næstunni samkvæmt nánari ákvörðun kjörstjórnar KÍ.