Samið um Menntamiðju til þriggja ára
Menntamiðja, samráðsvettvangur um skólastarf, verður starfrækt næstu þrjú árin hið minnsta. Samningur þessa efnis var undirritaður þriðjudaginn 26. janúar. Að samkomulaginu standa Menntavísindasvið Háskóla Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneytið, Reykjavíkurborg, Samband íslenskra sveitarfélaga og Kennarasamband Íslands.
Menntamiðja hefur verið starfrækt síðan 2012 við góðan orðstír. „Í hverju verkefni er virkjaður hópur fólks sem hefur þekkingu, áhuga og erindi í margbreytilega umræðu um þróun menntunar og skólamála. Tekist hefur að skapa samráðsvettvang á netinu þar sem fólk kemur saman úr ólíkum áttum, svo úr verður suðupottur nýrra hugmynda og þekkingar,“ segir á vefsíðu HÍ.
Þá er vert að geta þess að fjörlegar umræður fara fram á Twitter undir myllumerkinu #menntaspjall.
„MenntaMiðja verður hluti af Menntavísindastofnun og er fyrirhugað að samstarfsaðilar fundi að lágmarki einu sinni á ári. Áhersla er lögð á tengingu milli stofnana, skóla og fræðasamfélagsins með gagnkvæman ávinning allra aðila að leiðarljósi," segir jafnfram á vef HÍ.