Samhljómur um mikilvægi samtals um skólamál

Fréttir|6. nóvember 2026
Blásum byr í seglin
Fjölmennt og góðmennt á Akureyri

Fulltrúar KÍ ræddu skólamál framtíðar við skólafólk og stjórnmálafólk á Sauðárkróki, Akureyri og Húsavík.

Fulltrúar KÍ fóru í heimsókn til þriggja sveitarfélaga á Norðurlandi í kjölfar boðs þeirra um að fá fund og ræða um sýn KÍ í skólamálum; „Blásum byr í seglin“.  Fundirnir fóru fram í Norðurþingi, Skagafirði og á Akureyri og auk fulltrúa KÍ mættu á þá sveitarstjórnarfólk úr héraði og fulltrúar fræðsluyfirvalda sveitarfélaganna.

Formaður KÍ var ánægður með fundinn: „Þessir fundir voru hver öðrum betri, frábær og hreinskiptin umræða um bæði sýn KÍ og ósk um samfélagslegt samtal en líka rýni í skólastarf hvers sveitarfélags. Þarna kom sannarlega í ljós hversu öflugt skólastarf er að finna í þessum sveitarfélögum, metnaður til að gera enn betur og alger samhljómur um mikilvægi framtíðarsamtals á landsvísu um skólamál.“

Frekari fundir fulltrúa KÍ með ólíkum hagsmunaaðilum eru fyrirhugaðir á næstu vikum og mánuðum.

Húsvíkingar tóku vel á móti KÍ. 

Að loknum fundi á Sauðárkróki.