Sameyki styður kjarabaráttu kennara

Nauðsynlegt er að launafólk standi með öðru launafólki í baráttunni fyrir bættum kjörum. Þetta kemur fram í stuðningsyfirlýsingu stjórnar Sameykis.
Stuðningsyfirlýsing frá Sameyki stéttarfélagi í almannaþjónustu barst Kennarasambandi Íslands fyrr í dag.
Stjórn Sameykis telur nauðsynlegt að launafólk standi með öðru launafólki í baráttu fyrir bættum kjörum á vinnumarkiði. Svo hljóðar inntak yfirlýsingar stjórnar Sameykis.
Stuðningsyfirlýsingin í heild
Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu lýsir yfir stuðningi við kennara í réttinda- og kjarabaráttu þeirra. Leiðrétta þarf laun kvennastétta sem starfa í skólum og leikskólum landsins. Rannsóknir hafa sýnt að kennarastéttin er vanmetin í launum á vinnumarkaðnum og stærsta stökkið til að eyða launamun kynjanna er að leiðrétta laun kennara.
Stjórn Sameykis telur að nauðsynlegt sé að launafólk standi með öðru launafólki í baráttu þeirra fyrir bættum kjörum á vinnumarkaði, einkum kvennastétta þar sem nauðsynlegt er að launamunur kynjanna verði upprættur.