Sameinumst undir regnboganum

Hinsegin dagar hófust í dag og standa fram á sunnudag. Hápunkturinn er gleðigangan í Reykjavík á laugardag.
Kennarasamband Íslands styður heilshugar við réttindabaráttu hinsegin fólks og hvetur til þátttöku í gleðigöngum laugardagsins.
Gangan fer af stað frá Hallgrímskirkju stundvíslega kl. 14:00. Gengið er þaðan eftir Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu og Fríkirkjuvegi. Gangan endar við gatnamót Fríkirkjuvegar og Skothúsvegar, en atriði halda áfram inn Sóleyjargötu og þaðan inn í Hljómskálagarðinn þar sem útitónleikar taka við.
Gleðigangan er hápunktur Hinsegin daga. Í henni sameinast lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og aðrir hinsegin einstaklingar ásamt fjölskyldum sínum og vinum til að staðfesta tilveru sína og minna á baráttumál sín. Gangan er í senn kröfuganga hinsegin fólks, sem kallar eftir jafnrétti, vitundarvakningu og útrýmingu mismununar, sem og vettvangur til að fagna því sem hefur unnist í baráttunni.
Stéttarfélögin ganga saman
Að þessu sinni munu félagar í KÍ, ASÍ, BSRB og BHM ganga saman við dúndrandi undirleik Lúðrasveitar verkalýðsins. Félagar í KÍ eru hvattir til að taka þátt.
Hýr vinnumarkaður – samtal í boði ASÍ, BHM, BSRB og KÍ
Staða hinsegin fólks á vinnumarkaði og mikilvægi hinsegin vottunar verður rædd, auk þess stutt fræðandi innlegg og samtal aðila vinnumarkaðarins um áskoranirnar, bakslagið, fordómana og ávinninginn af að snúa við blaðinu.
Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku og Kári Garðarsson framkvæmdastjóri Samtakanna´78 flytja stutt erindi.
Þátttakendur í sófaspjalli verða Hafþór Óskarsson grunnskólakennari, Irma Alexandra forritari og Erna Dís Ingólfsdóttir mannauðsstjóri Íslandshótela og Sara Dögg Svanhildardóttir sviðsstjóri fræðslu- og upplýsingasviðs ASÍ.
Undirritun viljayfirlýsingar
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna '78, Finnbjörn Hermansson, forseti Alþýðusambands Íslands, Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands , Jón Ólafur Halldórsson formaður, Samtaka atvinnulífsins, Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB undirrita viljayfirlýsingu þar sem því er lýst yfir að aðilar vinnumarkaðarins, Samtökin '78 og félags- og húsnæðismálaráðherra muni taka höndum saman til að stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika á vinnumarkaði með stofnun aðgerðarhóps sem mun vinna fræðsluefni, aðgerðir og verkfæri fyrir vinnustaði ásamt því að byggja upp frekari þekkingu með rannsóknum.
Fundarstjóri verður Þorbjörg Þorvaldsdóttir.
Allir velkomnir í Iðnó klukkan fjögur á föstudag.
