Sameiginlegt markmið að bæta kjör kennara

Fréttir|17. apríl 2015

Ársfundur Kennarasambands Íslands var settur á Grand Hóteli Reykjavík klukkan 10 í morgun. Um áttatíu fulltrúar sækja fundinn. Yfirskrift fundarins er „ímynd og orðræða kennara“.

Þórður Árni Hjaltested, formaður KÍ, setti fundinn. Hann hóf ræðu sína á að fjalla um ýmsa þætti í starfsemi KÍ síðastliðið ár, svo sem mikla vinnu við kjarasamningagerð aðildarfélaga KÍ, eflingu starfsþróunar, forystufræðslu, skólamál og vinnu við hvítbók menntamálaráðherra.

Þórður sagði vinnu við kjarasamninga hafa verið erfiða. Fimm aðildarfélög hafi boðað verkföll og fjögur hafi orðið að veruleika. „Í öllum þessum átökum stóðum við félagsmenn KÍ þétt saman. Við mættum á samstöðufundi og hvöttum hvert annað til dáða. Nú skiptir miklu máli að halda áfram að standa saman. Menn geta verið ósammála um einstakar leiðir en almennt stefna allir, forsvarmenn félaga, starfsmenn KÍ og félagsmenn allir að sama markmiði – sem er að bæta kjör kennara,“ sagði Þórður í ræðu sinni.

Þórður gerði hvítbók menntamálaráðherra skil í ræðu sinni. Hann sagði megináherslu hvítbókar vera á læsi, námstíma og starfsnám. Ráðherra hafi kynnt fulltrúum KÍ málið og heitið því að KÍ fengi að koma að vinnunni. „Það kom síðar í ljós að ráðherrann valdi að skipa starfshópa um þessi þrjú verkefni án beinnar aðkomu hagmunaaðila. KÍ mótmælti þessu kröftuglega,“ sagði Þórður og bætti við að KÍ og öðrum hagsmunaaðilum hefði síðar verið boðið að skipa eigin rýnihópa sem ættu samráð við starfshópa ráðherra. KÍ hafi gengið þá leið og ákveðið að taka þátt í þessari vinnu á forsendu ráðuneytis og ráðherra.

Þá sagði Þórður KÍ hafa gert alvarlega athugasemdir við þau áform menntamálaráðherra að skerða aðgengi 25 ár aog eldri að framhaldsskólum og áform um að stytta nám til stúdentsprófs þannig að það verði þrjú ár. „Allt þetta fer fram án aðkomu KÍ, án umræðu í samfélaginu og án þess að Alþingi fjalli um málið. Það er stóralvarlegt,“ sagði Þórður.

Nánari upplýsingar um ársfundinn.