Sambandið vísar kjaradeilu til ríkissáttasemjara

Fréttir|24. september 2024

Boð þess efnis bárust Kennarasambandinu í gær.

Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur vísað kjaradeilu við Kennarasambandið til ríkissáttasemjara.

Boð þess efnis bárust Kennarasambandinu síðdegis í gær, mánudaginn 23. september. 

Boðað hafði verið til fundar samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga (SNS) og viðræðunefndar Kennarasambandsins en ekkert varð af honum, þar sem SNS ákvað að vísa deilunni áður en til þess fundar kom. 

Kjarasamningar Félags grunnskólakennara, Félags leikskólakennara, Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, Félags stjórnenda leikskóla og Skólastjórafélags Íslands runnu út 31. maí síðastliðinn.

Kjarasamningar Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum rann út 31. mars en þar er ríkið samningsaðili.

Viðræðunefnd Kí er skipuð formönnum allra framangreindra aðildarfélaga.