Sambandið sleit viðræðum við Félag grunnskólakennara

Fréttir|1. október 2020

Kjaraviðræðum FG og SNS hefur verið vísað til ríkissáttasemjara. FG lagði fram tillögu að lausn sem var hafnað.

Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga (SNS) sleit síðdegis í dag kjaraviðræðum við Félag grunnskólakennara. SNS hefur vísað viðræðunum til ríkissáttasemjara. 

Viðræðuáætlun samninganefndar FG og SNS var framlengd 10. júlí síðastliðinn og átti að ljúka samningi eigi síðar en 1. október. 

Samninganefnd FG lagði fram lausn í gær sem var einföld og hnitmiðuð og innihélt 3 liði en þeir voru:

  • Hækkun launa samkvæmt lífskjarasamningnum og samningstíma til 30. júní 2021.
  • Innleiðing starfsmats samkvæmt starfsmatskerfinu SAMSTARF fyrir félagsmenn FG sem tæki gildi 1. ágúst 2021.
  • Umsamin bókun um sveigjanlegt starfsumhverfi kennara, sem samið var um í viðræðuáætlun, yrði færð inn sem kjarasamningsgrein. 

„Það eru vonbrigði að greina frá því að SNS hafnaði lausninni og hefur slitið viðræðum og vísað kjaraviðræðunum til ríkissáttasemjara," segir í tölvupósti sem sendur var félagsmönnum fyrr í kvöld.