Saman fyrir kennara, saman til framtíðar

Fréttir|28. september 2025

Kennaradagurinn, fimmta október, gefur tilefni til að vekja athygli á faglegu starfi kennara. Education International hvetur til fjárfestingar í opinberri menntun og ítrekar um leið að kennarar eru bestu málsvarar barna og ungmenna er kemur að skólakerfinu.

Við skorum á stjórnvöld og alþjóðasamfélagið allt að fjárfesta í kennurum og styðja þannig friðsælli, réttlátari og sjálfbærari framtíð fyrir alla. Saman fyrir kennara, saman til framtíðar!

Svo hljóða skilaboð Alþjóðlegu kennarasamtakanna, Education International (EI) á Alþjóðadegi kennara sem við, og kennarar um allan heim, höldum hátíðlegan fimmta október ár hvert.

Skilaboð EI eru jafnframt þau að kennaradagurinn í ár gefi tilefni til byggja á árangri síðustu ára er kemur að hvatningu til stjórnvalda, um allan heim, að fjárfesta í kennurum, hafa gott opinbert menntakerfi og tryggja þannig að börn og ungmenni hafi aðgang að gæðamenntun.

Þarna er meðal annars vísað til herferðar EI sem gengur undir heitinu Go Public! Fund Education (Eflum hið opinbera, fjármögnum menntun) og hófst í janúar 2023, og stendur enn. Inntakið er í fáum orðum það að áhersla skuli lögð á að stöðva einkavæðingu menntunar enda grafi hún undan jöfnuði, kennarar og samtök þeirra eigi að vera í forgrunni sem málsvarar barna og samfélagsins alls er kemur að menntun. Þá er kallað eftir aukinni fjárfestingu í menntakerfum heimsins.

Málflutningur EI rímar vel við nýlega skýrslu Sameinuðu þjóðanna um menntaumbætur en þar segir að kennarar eigi að vera í lykilhlutverki þegar kemur að menntakerfinu, umbótum og þróun þess. Fjárfesta verði í menntakerfinu til auka gæði menntunar og þar skilar virk þátttaka kennara mestum árangri. Þá er mælt með sveigjanleika og nýsköpun í námi og kennslu.

 

Fjárfesting í menntun skilar sér margfalt til baka

Kennarasambandið hefur verið á sömu nótum og er skemmst að minnast ímyndarherferðarinnar síðasta vetur þegar hvatt var til fjárfestingar í kennurum með að markmiði að efla fagmennsku og stöðugleika í skólakerfinu. Skilaboð KÍ vöktu verðskuldaða athygli um allt samfélagið.

„Það er lykilatriði að við sem samfélag tökum þá ákvörðun að fjárfesta í kennurum með að leiðarljósi að auka fagmennsku. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna kveður á um að öll börn eigi rétt á menntun og þeim sé gert kleift að rækta hæfileika sína og færni. Faglegt starf og stöðugleiki innan skólanna stuðlar að aukinni vellíðan og velferð í samfélaginu.

Á sama hátt skilar fjárfesting í menntun sér margfalt til baka því hún bætir félagslega stöðu barna og þau verða hæfari til að takast á við alls konar samfélagslegar áskoranir,“ skrifaði Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, í grein sem birtist á Vísi fyrir rétt rúmu ári.

 

Höldum upp á kennaradaginn

Kennarasambandið hvetur kennara, stjórnendur og starfsfólk skólanna til að halda upp á kennaradaginn og nýta tækifærið til að segja frá áhugaverðu skólastarfi og mikilvægi kennarastéttarinnar almennt. 

 

Kátir krakkar í skóla á Tailandi